N1 ehf.
Afgreiðsla
Vilt þú vinna á líflegum vinnustað?
N1 Sauðárkróki óskar eftir að ráða kraftmikið og þjónustulipurt starfsfólk til framtíðarstarfa við almenna afgreiðslu. Þjónustustöðin okkar er fjörugur vinnustaður sem iðar af mannlífi frá morgni til kvölds. Unnið á vöktum.
Helstu verkefni:
• Almenn afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Önnur tilfallandi verkefni á stöðinni
Hæfniskröfur:
• Reglusemi og stundvísi áskilin
• Samskiptafærni og þjónustulund
• Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
Fríðindi:
Aðgangur að Velferðarþjónustu N1
Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni og ELKO
Leitum einnig að starfsmönnum í fullt starf í eldhúsi.
Umsækjendur þurfa að vera liprir í samskiptum og eiga auðvelt með að vinna í hóp.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Brynjar stöðvarstjóri í síma 455-7070 eða hjá sveinnp@n1.is
Umsóknarfrestur
21.07.2022
Starf nr.: 220707-03
Skráð á vefinn: 07.07.2022
Stöðugildi: 4
Starfshlutfall: 100%