Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga
Nr. 19 - 2003

Úrskurður

 

Þann 17. mars 2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 19/2003.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Málsatvik eru þau að út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 2 fyrir höfuðborgarsvæðið samþykkti á fundi sínum þann  21. janúar 2002 umsókn B um atvinnuleysisbætur.  Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði um starfslok hans hjá X var réttur hans til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils skv. 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997.

 

2.

 

B kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 9. febrúar 2003.  Í bréfi sínu vísar hann til tveggja bréfa, ódagsettra, sem hann sendi úthlutunarnefndinni.með tölvupósti.  Í bréfunum segist hann hafa starfað hjá X í 30 ár sem kerfisstjóri og við forritun.   Stofnunin noti tölvukerfi sem hann hafi verið að þróa um árabil.  Hann hafi hlotið lof yfirmanna og samstarfsmanna fyrir að koma vinnustað sínum í fremstu röð á Norðurlöndum í tölvuskráningu sérhæfðra gagna.  Fyrir tveimur árum hafi nýr forstjóri komið til starfa.  Fljótlega eftir það hafi hann farið að finna mótbyr vegna kerfisins.  Fengnir hafi verið utanaðkomandi sérfræðingar til að gera úttektir á kerfinu.  Hann hafi fyrstu skýrsluna undir höndum og þar komi fram að kerfið þjóni vel þörfum stofnunarinnar og engin ástæða sé til að skipta út.  Hann hafi unnið við að endurskrifa elsta hluta kerfisins.  Einn daginn hafi birst maður sem hann átti að uppfræða  svo sá gæti gert tilboð í það verk.  Honum fannst hann ekki lengur njóta trausts og hafi því sagt upp störfum til að gefa nýjum stjórnendum frjálsar hendur með framvinduna.  Hann hafi hætt þann 1. nóvember 2001 eða fyrir rúmu ári.  Hann hafi að mestu dvalið erlendis árið 2002 og ekki sótt um atvinnuleysisbætur fyrr en nú. 

 

 

 


Niður­staða

 

1.

 

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

 

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

2.

 

Samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar veldur það missi bótaréttar í 40 bótadaga hafi umsækjandi sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna.  Í ákvæði þessu er ekki kveðið á um hvort viðurlagaákvæði þessu verði beitt án tillits til þess hve langt sé liðið frá því að starfslok urðu og þar til viðkomandi sækir um atvinnuleysisbætur.  Almenn lagarök þykja þó mæla með því að viðurlagaheimild þessari skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur.  Það megi því m.ö.o. líta svo á að viðkomandi hafi í stað þess að vera í starfi tekið þá ákvörðun að segja starfi sínu lausu og valið þann kost að fara á atvinnuleysisbætur til lengri eða skemmri tíma.  Kærandi sótti ekki um atvinnuleysisbætur fyrr en rúmt ár var liðið frá því hann lét af störfum.  At teknu tilliti til þessa er það mat úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta að fella beri ákvörðun úthlutunarnefndar um niðurfellingu bótaréttar kæranda í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils með vísat til 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997 um atvinnuleysistryggingar úr gildi.

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 2 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 21. janúar 2003 um að B skuli missa rétt til at­vinnu­leysis­bóta í 40 bóta­daga í upphafi bótatímabils er felld úr gildi.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Frið­jón Guðröðarson

for­maður

Árni Benedikts­son                                 Benedikt Davíðs­son

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni