Niðurfelling á bótarétti í 40 bótadaga vegna höfnunar starfstilboðs.
Nr. 5 - 2003

Úrskurður

 

Hinn 29. janúar 2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 5/2003.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Úthlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta á Norðurlandi eystra samþykkti á fundi sínum þann 10. desember 2002 umsókn A um atvinnuleysisbætur.  Með vísan til upplýsinga á vottorði vinnuveitanda, dags. 2. nóvember 2002, um starfslok hennar hjá X var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna og/eða misst starf af ástæðum sem hann sjálfur á sök á skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga.  Úthlutunarnefndin tók málið aftur fyrir á fundi sínum þann 19. desember 2002 og staðfesti fyrri ákvörðun sína.

 

2.

A kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 3. janúar 2003.  Í bréfi sínu gerir hún kröfu um að fá greiddar atvinnuleysisbætur þær þrjár vikur sem hún hafi verið skráð atvinnulaus þar sem hún hafi þess utan verið atvinnulaus í þrjá mánuði.  Hún segist hafa sagt upp vinnu sinni vegna utanlandsferðar.  Unnusti hennar hafi verið við nám erlendis og þau hafi verið í þrjá mánuði erlendis.  Hún hafi skráð sig strax eftir að hún kom heim og fengið vinnu eftir þriggja vikna atvinnuleysi.  Í bréfi, ódagsettu, sem hún sendi úthlutunarnefnd segist hún hafa sagt upp vinnu sinni vegna þriggja mánaða dvalar í T-landi.  Kærasti hennar hafi verið þar í köfunarkennaranámi, námið hafi verið 4 námskeið og tekið 9 vikur í heild.

 

 

Niður­staða

 

1.

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

 

2.

 

Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast þær ástæður sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.  Samkvæmt a-lið 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997 er áskilið að um búferlaflutninga hafi verið að ræða vegna starfs eða náms maka.  Níu vikna nám erlendis uppfyllir ekki þessi skilyrði.  Hvað varðar þá fullyrðingu að kærandi hafi verið atvinnulaus að auki í þrjá mánuði þá er bótaréttur samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar háður því að einstaklingur sé á vinnumarkaði og í atvinnuleit.  Þann tíma sem kærandi dvaldi erlendis uppfyllti hún ekki þessi skilyrði.  Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta á Norðurlandi eystra um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 staðfest.

 

 

 

 

 

 

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

            Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta á Norðurlandi eystra frá 10. desember 2002, um að A skuli sæta missi bótaréttar í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils, er staðfestur.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Frið­jón Guðröðarson

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                             Benedikt Davíðs­son

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni