Bótaréttur sjálfstætt starfandi einstaklings
Nr. 14 - 2003

ÚR­SKURÐUR

 

Þann 24. febrúar 2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 14/2003.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta fyrir Vesturland ákvað á fundi sínum þann 13. nóvember 20­02, að hafna um­sókn A um at­vinnu­leysis­bætur, dags. 13. nóvember 20­02.  Í bréfi út­hlutunar­nefndar til A dags. 18. nóvember 20­02, er ákvörðun nefndarinnar rökstudd með vísan til 11. gr. reglu­gerðar um ­bóta­rétt sjálf­s­tætt starf­andi einstaklinga úr At­vinnu­leysis­trygginga­sjóði nr. 740/1997.

 

2.

 

A kærði ákvörðun út­hlutunar­nefndar til úr­skurð­ar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta með bréfi, dags. 17. janúar 2003. Í bréfi A segist hún vera mjög ósátt við úrskurð úthlutunarnefndarinnar.  Hún hafi starfað í mörg ár hjá Bifreiðaverkstæði X ehf. sem sé fyrirtæki þeirra hjóna.  Verkstæðinu hafi verið lokað þann 1. júní 2002 og engin starfsemi verið þar síðan.  X eiginmanni hennar hafi boðist vinna sem verktaki við vélgæslustörf í Z-virkjun frá 1. janúar 2002 og í framhaldi af því hafi verkstæðinu verið lokað þann 1. júní 2002.

 

3.

 

Í málinu liggur fyrir bréf, móttekið hjá Vinnumálastofnun þann 14. febrúar 2003, Viðskiptaþjónustu Y ehf., undirritað M viðskiptafræðingi.  Í bréfinu er staðfest að fyrirtækið Bifreiðaverkstæði X ehf. sem var til húsa á C, hafi lokað þann 1. júní árið 2002 og að engin starfsemi hafi farið fram á verkstæðinu síðan.  X, annar eigandi verkstæðisins, hafi notað kennitölu fyrirtækisins til að selja sína vinnu í Z-virkjun.  A hafi ekki haft neinar tekjur af fyrirtækinu síðan í maí á árinu 2002 og starfi ekkert við þann rekstur sem X rekur nú á kennitölu fyrirtækisins.

 

Einnig liggur fyrir í málinu útskrift úr Hlutafélagsskrá dags. 13. nóvember 2002.  Þar kemur fram að A sé annar stofnenda fyrirtækisins Bifreiðaverkstæði X ehf.  Jafnframt kemur fram að hún er stjórnarmaður í félaginu og framkvæmdastjóri þess með prókúruumboð.

 

 

Niður­staða

 

1.

 

Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997, eiga launamenn og sjálfstætt starfandi einstaklingar, sem verða atvinnulausir, rétt á bótum úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt því sem fyrir er mælt í lögum þessum, enda séu þeir í atvinnuleit og fullfærir til vinnu.

 

Sam­kvæmt 2. mgr. 1. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997 er fé­lags­mála­ráð­herra veitt heimild til að setja nánari reglur um hvaða skil­yrðum sjálf­s­tætt starf­andi einstaklingar skulu full­nægja til þess að njóta bóta úr sjóðnum. Segir í ákvæði þessu að m.a. skuli settar reglur um hvaða skil­yrðum menn verða að full­nægja til þess að teljast sjálf­s­tætt starf­andi og vera at­vinnu­lausir. Í 6. gr. reglu­gerðar nr. 740/1997 um bóta­rétt sjálf­s­tætt starf­andi einstaklinga úr At­vinnu­leysis­trygginga­sjóði segir orðrétt:

 

Sjálfstætt starfandi einstaklingur telst vera atvinnulaus, þegar hann uppfyllir öll eftirtalin skilyrði:

1. Er hættur rekstri, sbr. 7. - 10. gr.,

2. hefur ekki tekjur af rekstri,

3. hefur ekki hafið störf sem launamaður,

4. er sannanlega í atvinnuleit og er reiðubúinn að ráða sig til allra almennra starfa,

5. hefur tilkynnt lok rekstrarins til opinberra aðila, sbr. 7. gr.

 

            Í 7. gr. er kveðið á um að til að tilkynning um lok rekstrar teljist fullnægjandi þurfi hún að bera með sér að:

1.  Lok sjálfstæðrar starfsemi hafi verið tilkynnt launagreiðandaskrá Ríkisskattstjóra og

2.  virðisaukaskattskyldri starfsemi hafi verið hætt.

 

            Í lögum um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997 er ekki kveðið sér­stak­lega á um réttar­stöðu þeirra sem eiga hlut í og/eða eru aðilar að stjórnun fyrir­tækja. Í reglu­gerð nr. 740/1997 um bóta­rétt sjálf­s­tætt starf­andi einstaklinga segir hins vegar orð­rétt í 11. gr.:

 

Um þá sem starfa hjá fyrir­tæki sem þeir eiga hlut í og/eða stjórna.

Maður sem star­far við eigin at­vinnu­rekstur, einn eða ás­amt maka sínum, eða við starf­semi sem hann rekur í sam­eign með öðrum aðila eða sem fer fram á vegum lög­aðila sem hann á jafnframt 50% eða meiri eignar­hluta í og/eða er aðili að stjórnun fyrir­tækisins, skal ekki á sama tíma eiga rétt á at­vinnu­leysis­bótum.  Sama gildir um þann sem vinnur við eigin at­vinnu­rekstur og á, einn eða ás­amt maka, börnum eða öðrum ná­komnum sbr. 3. tölul. 1. gr., 10 % eða meiri eignar­hluta í fyrir­tæki gegni hann jafnframt stöðu framkvæmda­stjóra, hafi prókúru þess eða á sæti í stjórn þess.

Til að öðlast rétt til at­vinnu­leysis­bóta verður hlut­að­eigandi að sýna fram á að hann hafi fram­selt eignar­hluta sinn og/eða sagt sig í raun frá stjórn fyrir­tækisins að upp­fylltum skil­yrðum 3. mgr. 9. gr. og að hann upp­fylli að öðru leyti skil­yrði laga um at­vinnu­leysis­tryggingar og þessarar reglu­gerðar fyrir bóta­rétti.

3. mgr. 9. gr. kveður síðan á um að ekki er hægt að uppfylla skilyrði um framsal eða lokun reksturs með því að afhenda reksturinn nákomnum.

 

Ljóst er að kærandi á 50% eignarhluta á móti eiginmanni sínum í fyrirtækinu Bifreiðaverkstæði X ehf.  Kærandi situr jafnframt í stjórn félagsins og er framkvæmdastjóri þess með prókúruumboð.  Þótt félagið reki ekki lengur bifreiðaverkstæði eins og við stofnun þess þá er það enn með rekstur og opið virðisaukaskattnúmer.  Samkvæmt skilgreiningu reglugerðar nr. 740/1997 hefur kærandi því stöðu sjálfstætt starfandi einstaklings.  Skilgreining þessi er óháð því hvort félagið greiði viðkomandi laun eða ekki.  Samkvæmt reglugerðinni skal hún ekki á sama tíma eiga rétt á atvinnuleysisbótum nema hún geti sýnt fram á að hún hafi framselt eignarhluta sinn eða rekstri hafi verið hætt skv. 6. og 7. gr. reglugerðarinnar.   Það er því niðurstaða úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta að umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur uppfylli ekki skilyrði laga um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta. Með vísan til framanritaðs er ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta fyrir Vesturland  í máli A staðfest.

 

Úr­skurðar­orð:

 

            Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta fyrir Vesturland frá 13. nóvember 2002 um synjun á umsókn A um atvinnuleysisbætur, er staðfest.

           

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Frið­jón Guðröðarson

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                             Benedikt Davíðs­son

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni