Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga vegna starfsloka felld úr gildi. Búferlaflutningar af fjölskylduástæðum.
Nr. 5 - 2006

Úrskurður

 

Hinn 27. janúar 2006 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 5/2006.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Úthlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 2 fyrir höfuðborgarsvæðið samþykkti á fundi sínum þann 22. nóvember 2005 umsókn X um atvinnuleysisbætur.  Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði 11. nóvember 2005 um starfslok hennar hjá H var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um at­vinnu­leysis­tryggingar.

 

2.

X kærði framangreinda ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi 30. nóvember 2005.  Í bréfi sínu segist hún hafa verið í starfi dómritara hjá H frá júlí 1992.  Ástæða uppsagnar hennar hafi verið sú að hún var að flytja búferlum til Reykjavíkur ásamt dóttur sinni.  Dóttirin hafi verið að hefja nám í hönnunardeild Iðnskólans, en slíkt nám sé ekki í boði við F.  X biður um að ákvörðun úthlutunarnefndar verði endurskoðuð með tilliti til þessa.

Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá F þann 11. nóvember 2005.  Þar kemur fram að Ólöf starfaði hjá H þar til 30. september 2005.  Ástæða starfsloka er sögð sú að hún hafi sjálf sagt upp störfum.  Samkvæmt útskrift úr þjóðskrá frá 25. janúar 2006 er lögheimili X og dóttur hennar að B í Reykjavík miðað við 1. desember sl.  Vottorð um skólavist dóttur kæranda í Iðnskólanum er meðal gagna málsins.

 

 

Niður­staða

 

1.

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um at­vinnu­leysis­tryggingar, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerðar nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:

 

Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

2.

 

Kærandi sagði upp starfi sínu til að flytja búferlum til Reykjavíkur þar sem dóttir hennar var að hefja nám í hönnunardeild Iðnskólans, en slíkt nám er ekki í boði í F þar sem kærandi bjó. Það er mat úrskurðarnefndar að 2. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997 eigi við í máli kæranda þar sem hún var að flytja með dóttur sinni sem var að hefja skólanám í Reykjavík sem ekki stóð til boða á heimaslóðum,  og að hún hafi því sagt upp störfum á grundvelli gildra ástæðna, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997.  Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 felld úr gildi með vísan til 2. mgr. 7. gr. rgl. 545/1997.

Úr­skurðar­orð:

 

            Felld er úr gildi ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 22. nóvember 2005 um að X skuli sæta missi bótaréttar í 40 bótadaga. 

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Elín Blöndal                                           Arnar Þór Jónsson

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni