Bótaréttur felldur niður. Hafnaði atvinnutilboð. Ítrekun.
Nr. 37 - 2006

Úrskurður

 

Þann 13. júní 2006 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 37/2006.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Málsatvik eru þau að út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið ákvað á fundi sínum sem haldinn var þann 20. febrúar 2006 að fella ótímabundið niður rétt B til atvinnuleysisbóta.  Ákvörðun þessi var tekin með vísan til 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar.  Ákvörðun þessi var tekin með vísan til upplýsinga um að B hafi ekki mætt til vinnu sem hann hafði ráðið sig til í gegnum Vinnumiðlun á bónstöðinni hjá X ehf.  Um ítrekun var að ræða því þann 28. desember 2005 hafði bótaréttur hans verið felldur niður í 40 bótadaga vegna starfsloka hans hjá Y ehf.

 

2.

B kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 16. maí 2006.   Í bréfinu segist hann  hafa verið sviptur bótum á þeim forsendum að hann hefði ekki mætt í vinnu hjá X ehf.  Hann hafi farið í atvinnuviðtal til X sem hafi sagst ætla að hringja í hann.  Hjá X hefur því þó verið haldið fram að hann hafi átt að mæta í vinnu daginn eftir.  B segist vilja fá sönnun þess að hann hafi verið ráðinn í vinnu ef eigi að svipta hann bótum vegna þessa.  Það hljóti þá að vera til ráðningarsamningur eða upptaka af fundinum sem sanni þetta.  Þar fyrir utan hafi hann fengið tímabundið vinnu á öðrum stað en þá vinnu hafi hann fengið í gegnum Fréttablaðið. 

Í gögnum málsins liggur fyrir atvinnutilboð frá X ehf.  Um var að ræða fullt framtíðarstarf við bílaþvott og bón.  Samkvæmt atvinnutilboðinu var B ráðinn til starfans þann 31. janúar og átti að mæta til vinnu þann 1. febrúar.  Í atvinnutilboðinu segir að B hafi ekki mætt til vinnu á umsömdum degi.  Haft var símsamband við þann starfsmann X sem sá um ráðningarferlið og staðfesti hann þetta.

 

 

 

 

           


Niður­staða

 

1.

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um at­vinnu­leysis­tryggingar, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerðar nr. 545/1997, um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta, en þar segir eftirfarandi: 

 

 

Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tl. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tl. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

 

 

2.

Kærandi fékk atvinnutilboð frá bílaþvottastöðinni X ehf. þann 30. janúar sl.  Hann mætti í viðtal daginn eftir eða þann 31. janúar.  Kærandi heldur því fram að atvinnurekandinn hafi sagst ætla að hringja í hann.  Í atvinnutilboðinu segir þó að hann hafi verið ráðinn á staðnum og átt að mæta daginn eftir, en ekki mætt.  Atvinnurekandinn staðfesti þetta símleiðis við starfsmann úrskurðarnefndarinnar og telur nefndin ekki ástæðu til að draga það í efa, enda verður ekki séð að hann hafi hagsmuni af því að gefa rangar upplýsingar í þessu efni.

 

 

Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast þær ástæður sem kærandi gefur fyrir að sinna ekki framkomnu atvinnutilboði ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.

 

Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um ótímabundna niðurfellingu bóta­réttar kæranda samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar, staðfest.  Kærandi öðlast ekki bótarétt að nýju nema hann sanni að hann hafi stundað vinnu í samfellt sex vikur eftir að hann missti bótaréttinn.

 

 

 

Úr­skurðar­orð

 

Staðfest er ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 20. febrúar 2006 um ótímabundna niðurfellingu bótaréttar B. B öðlast ekki bótarétt að nýju nema hann sanni að hann hafi stundað vinnu í samfellt sex vikur eftir að hann missti bótaréttinn.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni