Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi til að fyltja búferlum til foreldra sinna. Staðfest.
Nr. 1 - 2007

Úrskurður

 

Þann 26. janúar 2007 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 1/2007.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Málsatvik eru þau að Vinnumálastofnun á Vestfjörðum samþykkti þann 28. nóvember 2006 umsókn X um atvinnuleysisbætur frá 16. október 2006. Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði frá 24. október 2006 um starfslok hennar hjá L rekur var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar. 

 

2.

 

X kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi þann 22. desember 2006.   Í bréfi dags. 4. desember 2006 segist hún hafa verið í fæðingaroflofi þegar hún flutti til P mars 2006.  Eftir að því lauk hafi hún verið í virkri starfsleit eins og starfsleitaráætlun sýni.  X segir að ástæða flutninganna hafi verið sú að hún hafi verið óvinnufær síðustu mánuði meðgöngunnar. Hún hafi einnig slitið sambandi við barnsföður sinn.  Hún hafi því flutt til uppeldisforeldra sinna á P  til að fá þann stuðning sem hún þurfti og ódýrara húsnæði þar sem hún sé nú orðin einstæð móðir.  Hún eigi enga fjölskyldu fyrir sunnan.  Hún hafi talið víst að hún gæti fengið vinnu á P þar sem hún sé fædd og uppalin.  Hún ætli að búa á Pog ala þar upp barn sitt.

Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá L frá 24. október 2006.  Þar segir að X hafi verið starfsmaður á L tímabilið 23. ágúst 2005 til 29. janúar 2006.  Ástæða starfsloka er sögð sú að hún hafi farið í fæðingarorlof.

  


Niður­staða

 

1.

 

Ákvæði 54. gr.  laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar,  fjallar um þau atvik er starfi er sagt upp án gildra ástæðna.  Í 1. og 2. mgr. 54. gr. segir eftirfarandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur.  Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á biðtímanum skv. 1.mgr.

 

           

 

 

2.

 

Kærandi var starfsmaður á leikskóla í Reykjavík þar til hún fór í fæðingarorlof.  Síðustu mánuði meðgöngunnar var hún óvinnufær.  Hún kveðst hafa slitið sambandi við barnsföður sinn í Reykjavík og flutti í kjölfarið til uppeldisforeldra sinna á P til að fá ódýrara húsnæði og stuðning frá þeim þar sem hún var orðin einstæð móðir, en kærandi segist ekki eiga neina fjölskyldu fyrir sunnan.

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur.  Í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er orðalagið gildar ástæður skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.  Almennt flokkast ágreiningur milli starfsmanna og vinnuveitanda, s.s. um launakjör, vinnutíma og/eða aðstæður á vinnustað ekki sem gildar ástæður samkvæmt framangreindum reglum.  Það er mat úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta að þær ástæður sem kærandi færir fram séu ekki gildar í skilningi 54. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysisbætur

 

Með vísan til framanritaðs er ákvörðun Vinnumálastofnunar á Vestfjörðum um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga staðfest, samanber 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

 

Úr­skurðar­orð

 

Staðfest er ákvörðun Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra frá 28. nóvember 2006 um niðurfellingu bótaréttar X í 40 bótadaga.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni