Niðurfelling bótaréttarí 40 bótadaga. Segir upp starfi. Flytur í annað sveitarfélag í 44 km fjarlægð. Staðfest.
Nr. 10 - 2007

Úrskurður

 

Þann 13. mars 2007 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 10/2007.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Málsatvik eru þau að úthlutunarnefnd atvinnuleysistrygginga eystra samþykkti þann 23. febrúar 2007 umsókn X um atvinnuleysisbætur frá 2. febrúar 2007. Með vísan til upplýsinga um starfslok hennar hjá S á D var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar. 

 

2.

 

X kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndarinnar með bréfi þann 28. febrúar 2007.   Í bréfi sínu segist hún ekki telja rétt að setja sig á 40 daga bið vegna uppsagnar hennar hjá S þar sem ástæða uppsagnarinnar hafi verið búferlaflutningur á milli sveitarfélaga.  Ástæða búferlaflutninganna frá D til A var að eiginmaður hennar hafði fengið vinnu á A og dóttirin var að klára grunnskóla og fara í framhaldsskóla á A.  Því hafi henni fundist þessi kostur vera bestur, sérstaklega til að geta fylgt dóttur sinni eftir í skólanum.  Einnig hefði verið dýrt fyrir dótturina að leigja sér húsnæði á A.  Um sé að ræða tvö aðskilin sveitarfélög og hún hafi ekki viljað leggja líf sitt í hættu með því að keyra til D í vinnu sama hvernig færð og veður hefði verið.

 

 Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá S hf. frá 9. febrúar 2007.  Þar kemur fram að kærandi hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2003, síðast í 55% starfshlutfalli en áður í allt að 74% starfshlutfalli.  Ástæða starfsloka er sögð sú að hún hafi sjálf sagt upp störfum og flutt til A.  Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni eru 44 km á milli D og A.  Um strandveg sé að ræða.  Samkvæmt upplýsingum úr þjóðskrá vinnur eiginmaður X hjá gröfufyrirtæki sem skráð er á A.

Í umsókn hjá Vinnumálastofnun sagðist kærandi óska eftir fullu starfi.  Í umsókninni sagði hún að ástæða þess að hún hafi flutt á milli bæjarfélaga hafi verið sú að hún eigi föður sem búi einn og sé orðin nær blindur af sykursýki.  Hún hafi viljað vera nær honum til að geta aðstoðað hann.

 

 

  


Niður­staða

 

1.

 

Ákvæði 54. gr.  laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar,  fjallar um þau atvik er starfi er sagt upp án gildra ástæðna.  Í 1. og 2. mgr. 54. gr. segir eftirfarandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur.  Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á biðtímanum skv. 1.mgr.

 

           

2.

 

Kærandi var starfsmaður S hf. á D.  Hún sagði upp störfum vegna þess að eiginmaður hennar hafði fengið vinnu á A og dóttir hennar var að byrja í framhaldsskóla á A.  Einnig sagði hún í umsókn um atvinnu og atvinnuleysisbætur að aldraður faðir hennar byggi einn á A, hann væri nær blindur og hún hafi viljað vera nær honum til að getað aðstoðað hann.

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur.  Í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er orðalagið gildar ástæður skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.  Almennt flokkast ágreiningur milli starfsmanna og vinnuveitanda, s.s. um launakjör, vinnutíma og/eða aðstæður á vinnustað ekki sem gildar ástæður samkvæmt framangreindum reglum.  Kærandi sagði upp starfi sínu vegna þess að hún var að flytja í annað sveitarfélag í 44 km fjarlægð.  Það er mat úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta að þær ástæður sem kærandi færir fram séu ekki gildar í skilningi 54. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysisbætur

Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar  um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga staðfest með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

 

Úr­skurðar­orð

 

Staðfest er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysistrygginga frá 23. febrúar 2007 um niðurfellingu bótaréttar Jónínu Halldórsdóttur í 40 bótadaga.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni