Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi. Var synjað um að fá að vinna styttri vinnutíma. Óánægja með yfirmann og starfsanda. Staðfest.
Nr. 25 - 2007

Úrskurður

 

Þann 21. júní 2007 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­trygginga og vinnumarkaðsaðgerða upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 25/2007.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Málsatvik eru þau að úthlutunarnefnd atvinnuleysistrygginga samþykkti þann 16. maí 2007 umsókn X um atvinnuleysisbætur frá 2. maí 2007.  Bótaréttur hennar var hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils.  Ákvörðun þessi var tekin á grundvelli 1. mgr. 54 gr. laga nr. 54/2006.  Ákvörðunin var tekin með vísan upplýsinga á vinnuveitandavottorði um starfslok hennar hjá R þann 30. apríl 2007.

 

2.

 

X kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi dags. 2. júní 2007.   Í bréfi sínu segir hún að ástæða uppsagnar hennar hafi verið tvíþætt.  Annars vegar hafi hún verið búin að biðja um styttri vinnutíma vegna fjölskyldu sinnar.  Hún hafi unnið frá kl. 9:00 til kl. 17:00 og til 17:30 aðra hvora viku þegar hún hafi séð um að loka leikskólanum, en hún hafi beðið um að fá að vinna frá kl. 9:00 til 15:00.  Leikskólastjórinn hafi hafnað þessu.  Einnig hafi starfsandinn verið mjög slæmur og leikskólinn verið mjög undirmannaður.  Þetta hafi verið aukaálag sem gerði það að verkum að hún hafi ekki treyst sér til að vera þarna áfram að óbreyttu.  Reynslumikið starfsfólk hafi einnig horfið á brott, sem segir sína sögu um ástandið á þessum vinnustað.

Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá R.  Þar kemur fram að kærandi hafi verið starfsmaður á leikskóla tímabilið 31. ágúst 2006 til 30. apríl 2007.  Ástæða starfsloka er sögð sú að hún hafi sjálf sagt upp störfum.  Starfsmaður úrskurðarnefndar hafði samband við aðstoðarleikskólastjóra í H þar sem kærandi hafði starfað.  Að sögn hans sagði kærandi sjálfviljug upp vinnu, talaði um að hún væri búin að fá aðra vinnu.  Ekki hafi verið möguleiki á að verða við óskum hennar um vinnutíma til kl. 15 í stað 17.  Aðstoðarleikskólastjórinn kannaðist ekki við að um slæman starfsanda hafi verið að ræða, en viðurkenndi að leikskólinn hafi verið undirmannaður í vetur, eins og reyndar hafi átt við um flesta leikskóla borgarinnar.

 


Niður­staða

 

1.

 

Ákvæði 54. gr.  laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar,  fjallar um þau atvik er starfi er sagt upp án gildra ástæðna.  Í 1. og 2. mgr. 54. gr. segir eftirfarandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur.  Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á biðtímanum skv. 1.mgr.

 

           

2.

 

Kærandi starfaði á leikskóla hjá R.  Hún kveðst hafa farið fram á að fá að vinna styttri vinnutíma, eða til kl. 15:00 á daginn í stað kl. 17:00 en þeirri beiðni hafi verið hafnað.  Einnig hafi verið slæmur starfsandi á leikskólanum og hann undirmannaður.  Hafi kærandi ekki treyst sér til að vera áfram á þessum vinnustað að óbreyttu og sagt upp störfum.

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur.  Í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hefur orðalagið gildar ástæður verið skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.  Almennt flokkast ágreiningur milli starfsmanna og vinnuveitanda, s.s. um launakjör, vinnutíma og/eða aðstæður á vinnustað ekki sem gildar ástæður samkvæmt framangreindum reglum. 

Það er mat úthlutunarnefndar að ástæður þær sem kærandi gefur upp fyrir uppsögn varðandi synjun um breytingu á vinnutíma með þeim hætti er greinir hér að framan og óánægju á vinnustað geti ekki talist gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þannig að réttlætt geti að hlutaðeigandi segi upp atvinnu án þess að hafa fengið nýja í staðinn og fari þar með beint á atvinnuleysisbætur.   Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysistrygginga  um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga staðfest með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

 

 

Úr­skurðar­orð

 

Staðfest er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysistrygging frá 16. maí 2007 um niðurfellingu bótaréttar X í 40 bótadaga.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða

 

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni