Bótaréttur námsmanns samhliða námi.
Nr. 28 - 2003

Úrskurður

 

Þann 7. apríl 2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 28/2003.

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Málsatvik eru þau að út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið ákvað á fundi sínum þann 10. mars 2003, að hafna umsókn A um atvinnuleysisbætur. Í bréfi úthlutunarnefndar til A dags. 12. mars  s.l. er vísað til 5. gr. reglugerðar um greiðslu atvinnuleysisbóta nr. 545/1997 sem kveður á um að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum samhliða námi sem stundað er á venjulegum dagvinnutíma nema annað leiði af samningi um starfsleitaráætlun, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir.

 

2.

A kærði framangreinda ákvörðun til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 19. mars 2003.  Í kæru hennar segist hún vera skráð í Háskóla Íslands þar sem hún útskrifist ekki fyrr en í júní 2003.  Hún hafi hins vegar lokið öllum fögum í maí 2002 og því eigi tilvísað ákvæði ekki við sig.  Hún sé að leita að fullu starfi.  

 

3.

Samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands er A skráð í 5 eininga BS ritgerð á vorönn 2003.  Hún sé ekki skráð í nein fög og því sé ekki um neina tímasókn að ræða samfara ritgerðaskrifunum.  Samkvæmt vottorði frá háskólanum dags. 28. febrúar 2003 var A skráður stúdent við skólann háskólaárið 2001-2002 í fullu námi og tók hún síðast próf á vormisseri 2002. Samkvæmt upplýsingum á atvinnuumsókn A hjá svæðisvinnumiðlun óskar A eftir fullu starfi og kveðst geta hafið störf 27. febrúar 2003 sem er sami dagur og hún sækir um atvinnuleysisbætur.   

 

Niður­staða

 

1.

Í 5. gr. reglugerðar um greiðslu atvinnuleysisbóta nr. 545/1997 er kveðið á um að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum samhliða námi sem stundað er á venjulegum dagvinnutíma, nema annað leiði af samningi um starfsleitaráætlun, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir.

 

            Samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir í máli þessu er kærandi að skrifa lokaritgerð í landafræði við Háskóla íslands.  Hún hefur lokið öllum prófum og sækir enga tíma í skólanum samfara ritgerðarsmíðinni.  5. gr. reglugerðar 545/1997 hefur ávalt verið túlkuð svo að um tímasókn á venjulegum dagvinnutíma þurfi að vera að ræða svo greinin eigi við.  Þannig fellur nám sem stundað er í kvöldskóla og nám utan venjulegs dagvinnutíma utan greinarinnar.  Kærandi hefur lokið öllum fögum þar sem gert er ráð fyrir tímasókn.   Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta á nefnd grein ekki við um nám kæranda.  Er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um synjun á umsókn hennar um atvinnuleysisbætur því felld úr gildi.

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 10. mars 2003 um synjun á umsókn A um atvinnuleysisbætur er felld úr gildi.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Frið­jón Guðröðarson

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                 Benedikt Davíðs­son

 

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni