Niðurfelling á bótarétti í 40 bótadaga, hættir starfi
Nr. 3 - 2003

Úrskurður

 

Þann 29. janúar 2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 3/2003.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Málsatvik eru þau að út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið ákvað á fundi sínum þann  23. september 2002, að réttur A skyldi felldur niður í 40 bótadaga skv. 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997.  Málið var aftur tekið fyrir á fundi nefndarinnar þann 30. desember 2002 þar sem fyrri úrskurður var staðfestur.   Í bréfi úthlutunarnefndar til A er vísað til  upplýsinga á vottorði vinnuveitanda, dags. 19. september 2002, um starfslok hennar hjá X hf..

 

2.

A kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 2. janúar 2003. Í bréfi hennar segir að eftir að hún hafi starfað hjá X í nokkurn tíma hafi hún farið að versna af astma sem hefur hrjáð hana í mörg ár.  Ástæða þess hafi verið sú að mjög kalt var á vinnustaðnum, mikill raki í lofti og hún hafi ítrekað blotnað í fætur.  Læknir hennar hafi ráðlagt henni að hætta samstundis.  Hún hafi ekki gert sér grein fyrir því að hún þyrfti læknisvottorð.  Hún hafi tjáð vinnuveitendum sínum að hún gæti ekki starfað þar lengur vegna heilsu sinnar. 

 

3.

Í gögnum málsins kemur fram að A starfaði hjá X h.f. tímabilið 2. til 9. september s.l.  Í bréfi úthlutunarnefndar dags. 9. janúar 2003 segir að á fundi nefndarinnar þann 23. september s.l. er nefndin fjallaði um starfslok A hafi eingöngu legið fyrir vinnuveitandavottorð sem staðfesti að hún hefði sjálf sagt  upp starfi sínu.  Er nefndin tók málið fyrir aftur þann 30. desember s.l. lagði A fram læknisvottorð dags. 4. desember 2002.  Í vottorðinu komi fram að hún sé með astma og hafi þess vegna ekki treyst sér til að vinna áfram hjá X h.f.  Ekki komi fram að henni hafi verið ráðlagt að hætta störfum vegna sjúkdóms né að hún hafi leitað læknis áður en hún hætti störfum.  Einnig sé A samkvæmt atvinnuumsókn hjá svæðismiðlun umsækjandi um 100% með fulla vinnufærni.  Haft var samband við vinnuveitanda A, X h.f., til að fá upplýsingar um starfslok hennar.  Starfsmaður í upplýsingaskráningu staðfesti að hún hefði farið heim veik einn daginn og síðan hafi ekki heyrst meira frá henni, ekkert hafi komið fram um að hún myndi hætta störfum vegna sjúkdóms eða annars.

 

 

 


Niður­staða

 

1.

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

2.

Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast þær ástæður sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.  Vinnuveitanda kæranda virðist ekki hafa verið kunnugt um ástæður þess að hún lét af störfum eins og áskilið er í b-lið 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.    Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 staðfest.

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 23. september 2002 um að A skuli missa rétt til at­vinnu­leysis­bóta í 40 bóta­daga er staðfest.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Frið­jón Guðröðarson

for­maður

Árni Benedikts­son                                 Benedikt Davíðs­son

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni