Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga vegna fjarveru frá starfsleitarnámskeiði.
Nr. 45 - 2003

Úrskurður

 

Hinn 19. maí 2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 45/2003.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

            Málsatvik eru þau að út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið ákvað á fundi sínum þann 24. mars 2003, að réttur B, til atvinnuleysisbóta skyldi falla niður í 40 bótadaga á grundvelli 1. mgr. 12. gr. sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997.  Úthlutunarnefnd tók málið fyrir að nýju þann 7. apríl 2003 og staðfesti fyrri ákvörðun sína.   Vísað var til upplýsinga vinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins um fjarvist B frá starfsleitarnámskeiði.

 

2.

 

            B kærði framangreinda ákvörðun til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 31. mars 2003.  Í bréfi sínu segist hann hafa átt að mæta á starfsleitarnámskeið þann 3. febrúar 2003 í starfsleit 3.  Hann hafi því miður mætt þann 4. febrúar þar sem hann hafði skrifað þann dag á minnistöfluna og hafi því verið gerður afturreka af námskeiðinu.

 

3.

 

            Í bréfi vinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins til úthlutunarnefndar dags. 13. mars. s.l. segir að Starfsleit 3, námskeið í starfsleit, hafi hafist 3. febrúar og lokið 6. febrúar s.l.  Við boðun á námskeiðið hafi þátttakendum verið gerð grein fyrir því að um mætingaskyldu væri að ræða.  Einn boðaðra þátttakenda, B hafi ekki mætt fyrr en á öðrum degi námskeiðsins.  Í göngum málsins kemur fram að B hafi af þessum sökum verið vísað frá af námskeiðshaldara þar sem of seint væri að mæta á öðrum degi.   Einnig liggur fyrir  í málinu boðunarbréf  til B á Starfsleit 3, námskeið í starfsleit, dags. 6. janúar 2003, sem B kvittaði fyrir móttöku á.  Í bréfinu er tekið fram að dagsetning námskeiðsins sé 3. til 6. febrúar 2003, ásamt nánari tímasetningu og staðsetningu.  Í bréfinu segir með feitu letri að það geti valdið missi bótaréttar ef sá sem skráður er atvinnulaus taki ekki þátt í gerð starfsleitaráætlunar á vegum svæðisvinnumiðlunar eða fylgi ekki slíkri áætlun, þar á meðal hafni úrræðum svæðisvinnumiðlunar.

 


Niður­staða

 

1.

 

Í IV. kafla reglugerðar nr. 670/1998 um vinnumarkaðsaðgerðir er kveðið á um skyldur atvinnuleitanda samkvæmt starfsleitaráætlun. Í 13. gr. segir að markmið með gerð starfsleitaráætlunar, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, sé að aðstoða atvinnuleitanda við að finna starf við sitt hæfi. Skal starfsleitaráætlun vera með þeim hætti að þegar atvinnuleitandinn fylgir henni aukist líkur hans á að fá vinnu.  Samkvæmt 16. gr. reglugerðarinnar skal atvinnuleitandi sem er með samþykkta starfsleitaráætlun vera reiðubúinn að taka tilboði um atvinnu þegar hún býðst ef hann er ekki í sérstökum úrræðum samkvæmt starfsleitaráætlun.  Skylda þessi nær einnig til þess að taka þátt í námskeiðum sem hann er boðaður á af svæðisvinnumiðlun.  Í 14. gr. segir að samkomulag um starfsleitaráætlun skuli útfæra sem skriflegan samning milli aðila. 

 

Samkvæmt 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 getur það valdið missi bótaréttar ef sá sem skráður er atvinnulaus tekur ekki þátt í gerð starfsleitaráætlunar á vegum svæðisvinnumiðlunar eða fylgir ekki slíkri áætlun, þar á meðal hafnar úrræðum svæðisvinnumiðlunar um nám eða starfsþjálfun skv. e. lið 1. mgr. 10. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Um missi bótaréttar gilda ákvæði 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

2.

 

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti degi of seint á námskeið í starfsleit sem hann hafði verið boðaður á og hann hafði samþykkt að mæta á.  Um var að ræða fjögurra daga námskeið.  Að mati námskeiðshaldara var of seint að mæta á öðrum degi námskeiðisnis.  Í boðunarbréfinu, sem kærandi undirritaði við móttöku þann 6. janúar 2003, segir með breiðu letri að ef ekki er fylgt starfsleitaráætlun geti það varðað missi bótaréttar.   Engar viðhlítandi skýringar liggja fyrir af hálfu kæranda utan þess að hann hafi skrifað rangan dag á minnistölfu sína.  Að mati úrskurðarnefndar telst það ekki gild ástæða og ber því að staðfesta ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um niðurfellingu bótaréttar kæranda í 40 bótadaga.

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 24. mars. 2003 um að B skuli missa rétt til at­vinnu­leysis­bóta í 40 bóta­daga er staðfest.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Frið­jón Guðröðarson

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                 Benedikt Davíðs­son

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni