Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga, segir upp starfi.
Nr. 55 - 2003

Úrskurður

 

Þann 23. júní 2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 55/2003.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Málsatvik eru þau að út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið samþykkti á fundi sínum þann 22. apríl 2003 umsókn A um atvinnuleysisbætur.  Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði, dags 10. apríl 2003, um starfslok hennar hjá K var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga.

 

2.

A kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 30. maí 2003.  Í bréfi sínu segist hún hafa ráðið sig í vinnu á leikskóla þann 1. janúar 2003 og hafi sonur hennar byrjað á sama leikskóla.  Alveg frá fyrsta degi á þessum nýja vinnustað hafi henni ekki liðið vel.  Hún hafi engan veginn getað fundið sig í starfinu sem hún er þó sérmenntuð í og hefur góða reynslu í.  Hún hafi því ákveðið að segja upp vinnunni og því aðeins verið í einn mánuð á þessum vinnustað.  Hún tók þessa ákvörðun einnig vegna þess að hún ætlaði að fara að vinna fyrir sér sem dagmóðir.  Hún skráði sig á námskeið fyrir dagforeldra, lauk því námskeiði og auglýsti sig sem dagmóður með laust pláss.  Hún fékk hins vegar ekki börn í gæslu og hefur ekki fengið ennþá.  Hún hafi í raun hætt á leikskólanum til að fara að vinna við annað sem hún taldi eiga betur við sig, a.m.k. á meðan sonur hennar væri ekki eldri, og hyggst m.a. flytja í annað bæjarfélag þar sem meiri þörf er á dagmæðrum.   Í bréfi sínu segist hún eiga erfitt með að sætta sig við 40 bótalausa daga og fer hún fram á réttur hennar verði endurskoðaður.

 

 

Niður­staða

 

1.

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölu. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

2.

Í gögnum málsins kemur fram að A starfaði sem leikskólakennari hjá K tímabilið 1. janúar 2003 til 31. janúar 2003 er hún sagði sjálf upp starfi sínu.  Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast þær ástæður sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.   Ágreiningur milli starfsmanna eða yfirmanna og starfsmanna ellegar almenn óánægja í starfi  flokkast ekki undir gildar ástæður samkvæmt framangreindum reglum. Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um niðurfellingu bótaréttar kæranda í 40 bótadaga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 staðfest.

 

 

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

 

Úrskurðarorð hljóðar svo:  Ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 22. apríl 2003 um að A skuli sæta missi  bótaréttar í 40 bótadaga er staðfest.

 

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

 

Þuríður Jónsdóttir

Formaður

 

Árni Benedikts­son                                Benedikt Davíðs­son

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni