Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi án gildra ástæðna. Staðfest.
Nr. 23 - 2004

 

 

Úrskurður

 

Hinn 26. mars 2004 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 23/2004.

 

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Úthlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið samþykkti á fundi sínum þann 23. febrúar 2004 umsókn Y um atvinnuleysisbætur frá 13. febrúar 2004.  Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði dags. 19. febrúar 2004  um starfslok hans hjá fyrirtækinu A var réttur hans til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna, skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga.   

 

2.

 

Y kærði framangreinda ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 25. febrúar 2004.  Í bréfinu segir hann að sér hafi verið sagt upp starfi á síðasta vinnustað sínum.  Hann hafi fengið vinnu hjá B við skúringar í verslun sem þeir höfðu boðið í.  Þeir fengu hins vegar ekki verkefnið, og segir Y að það hafi alls ekki verið sér að kenna.

 

3.

 

            Í málinu liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá B.  Þar kemur fram að Y starfaði hjá fyrirtækinu tímabilið 9. til 12. febrúar s.l. eða í alls fjóra daga.  Ástæður starfsloka eru sagðar að um tímabundna ráðningu hafi verið að ræða. Einnig liggur fyrir í málinu vinnuveitandavottorð frá fyrirtækinu A dags. 17. febrúar s.l.  Þar segir að Y hafi starfað hjá fyrirtækinu frá 2. maí 2003 til 7. febrúar 2004 er hann gekk fyrirvaralaust út.  Í bréfi úthlutunarnefndar nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið dags. 27. febrúar s.l. kemur fram að á fundi úthlutunarnefndar hafi verið ákveðið að taka ekki tillit til vinnu hans hjá B þar sem hann starfaði þar aðeins í fjóra daga.  Ákvörðunin um niðurfellingu bótaréttar hans í 40 bótadaga var tekin á grundvelli starfsloka hana hjá A þar sem hann gekk fyrirvaralaust úr starfi.

 

Niður­staða

 

1.

 

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

2.

 

Að sögn kæranda hætti hann vegna ósættis við vinnuveitendur sína.  Ágreiningur milli starfsmanna og vinnuveitanda um launakjör, vinnutíma og/eða aðstæður á vinnustað flokkast almennt ekki sem gildar ástæður í skilningi  4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.samkvæmt framangreindum reglum.  Kærandi gekk fyrirvaralaust úr starfi hjá fyrirtækinu A þar sem hann hafði starfað í níu mánuði.  Honum var ekki sagt upp störfum heldur sagði hann sjálfur upp fyrirvaralaust.  Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast starfslok með þessum hætti ekki gildar ástæður í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.  Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 1 á höfuðborgarsvæðinu um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 staðfest.

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 á höfuðborgarsvæðinu frá 23. febrúar 2004 um niðurfellingu bótaréttar Y í 40 bótadaga skv. 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997 um atvinnuleysisbætur, er staðfest.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                Benedikt Davíðs­son

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni