Borgarbyggð
Starfsmaður heimaþjónustu
Starfsfólk í heimahjálp óskast hjá Borgarbyggð. Starfið felur í sér heimilisþrif hjá öldruðum og öryrkjum, verslunarferðir fyrir þá sem það þurfa sem og félagslegan stuðning þegar við á.
Um er að ræða sumarafleysingar sem og 60% fast starfshlutfall með möguleika á meira. Vinnutíminn er kl. 8-16 en getur verið sveigjanlegur og laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitafélaga. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 1.júní nk.
Við leitum að íslenskumælandi fólki, 18 ára og eldra, með bílpróf og bíl til umráða og færni í félagslegum samskiptum.
Æskilegast væri að viðkomandi byggi í Borgarbyggð eða á Akranesi.Skemmtilegt og fjölbreytt starf sem er tilvalin sumarvinna fyrir skólafólk og alla þá sem gaman hafa af góðu kaffispjalli við áhugaverða einstaklinga.
Nánari upplýsingar gefur Kristín H Kristjánsdóttir í tölvupósti á netfangið kristinhk@borgarbyggd.is eða í síma 8401525.
Umsóknarfrestur
30.05.2024
Starf nr.: 240507-01
Skráð á vefinn: 07.05.2024
Stöðugildi: 2
Starfshlutfall: 60%