Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves
Verkefnastjóri milliríkjainnheimtu
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra leitar að drífandi og lausnamiðuðum verkefnastjóra til starfa. Starfsstöð er á Blönduósi. Um er að ræða nýtt og spennandi starf en verkefni liggja þvert á svið innheimtu og stjórnsýslusviðs. Ráðið verður til eins árs en með möguleika á framlengingu að teknu tilliti til mótunar og árangurs af starfinu.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. júlí eða fyrr sé þess kostur.
Helstu verkefni
• Mótun, gerð og innleiðing verkferla um norræna innheimtu sekta, sakarkostnaðar og meðlags á grundvelli gildandi milliríkjasamninga
• Umsjón með milliríkjainnheimtu
• Greining á heimildum og úrræðum til erlendrar innheimtu utan Norðurlandanna
• Umsjón með samskiptum og samstarfi við hagaðila málaflokksins
• Leiðsögn til starfsmanna
• Önnur verkefni sem verkefnastjóra eru falin og eru á starfssviði embættisins
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf á meistarastigi og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
• Haldbær þekking og/eða reynsla af verkefnastjórnun
• Leiðtogahæfni og ríkuleg hæfni í mannlegum samskiptum
• Geta til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi er skilyrði
• Jákvætt viðmót og samvinnufærni er skilyrði
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi er kostur
• Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum
• Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þekking á einu Norðurlandamáli er kostur
Nánari upplýsingar og hlekk á umsóknir er að finna á Starfatorgi.
https://island.is/starfatorg?institution=S%C3%BDsluma%C3%B0urinn+%C3%A1+Nor%C3%B0urlandi+vestra
Umsóknarfrestur
13.05.2024
Starf nr.: 240506-05
Skráð á vefinn: 06.05.2024
Stöðugildi: 1
Starfshlutfall: 100%