Styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað
Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað þann 19.maí síðastliðinn í Hörpu og fengu 30 verkefni styrki samtals að fjárhæð 35.000.000 kr.
Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað þann 19.maí síðastliðinn í Hörpu og fengu 30 verkefni styrki samtals að fjárhæð 35.000.000 kr.
Skráð atvinnuleysi í apríl var 3,3% og minnkaði úr 3,5% í mars. Í apríl 2022 var atvinnuleysið hins vegar 4,5%.Sjá meira:
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í apríl þar sem 71 einstaklingi var sagt upp störfum þar af 54 í opinberri stjórnsýslu og 17 í flutningum.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Páll Ásgeir Guðmundsson, forstöðumaður efnahags- og samkeppnishæfnisviðs hjá Samtökum atvinnulífsins, Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, og Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK starfsendurhæfingarsjóðs, skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um stóraukinn einstaklingsmiðaðan stuðning við ungt fólk í viðkvæmri stöðu. Meira en 450 milljónum króna verður varið til verkefnisins yfir þriggja ára tímabil.
Skráð atvinnuleysi í mars var 3,5% og minnkaði úr 3,7% í febrúar. Í mars 2022 var atvinnuleysið hins vegar 4,9%.Sjá nánar:
Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í mars þar sem 28 starfsmönnum var sagt upp störfum í verslunarstarfsemi. Uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu maí til júlí 2023.
Í fjölmiðlaumfjöllun undanfarna daga hefur meðal annars komið fram að Vinnumálastofnun hafi yfirboðið leiguíbúðir í Reykjanesbæ í því skyni að nýta þær sem búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í ljósi þess vill Vinnumálastofnun koma eftirfarandi á framfæri:
15 Березня були прийняті зміни до Закону про право на працевлаштування іноземних громадян № 97/2002. Зміни були внесені до положень статей Закону під номером 11, 12 і 22, які передбачають, що власники дозволів на проживання на підставі гуманітарного захисту, а також на підставі особливого зв'язку з країною, відтепер будуть звільнені від вимоги додатково отримувати тимчасовий дозвіл на роботу. Окрім того, власники даного типу дозволів на проживання мають право отримувати виплати по безробіттю, за умови виконання відповідних вимог.
Þann 15. mars voru samþykktar breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002.
Gísli Davíð Karlsson f.h. Vinnumálastofnunar og íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja undirrituðu í gær samning um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Skráð atvinnuleysi í febrúar var 3,7% og var óbreytt frá janúar. Í febrúar 2022 var atvinnuleysið hins vegar 5,2%.Sjá nánar:
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í febrúar þar sem 50 starfsmönnum var sagt upp störfum þar af 33 í þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni og 17 við vísindarannsóknir og þróunarstarf. Uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu apríl til júní 2023.
Þú hefur skoðað 12 fréttir af 18