Lokað á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ

þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar Krossmóum 4A í Reykjanesbæ, verður lokuð til og með 3. janúar. Stefnt er að því að opna aftur miðvikudaginn 4. janúar kl. 09:00 á nýum stað, Grænásbraut 619, 262 Reykjanesbæ. Hægt er að leita til þjónustuskrifstofu höfuðborgarsvæðisins á Grensásvegi 9, 108 Reykjavík. Einnig er hægt er að hafa samskipti við snjallmennið Vinný allan sólahringinn.

Lesa meira

Skráð atvinnuleysi í nóvember var 3,4%

Skráð atvinnuleysi í nóvember var 3,4% og hækkaði úr 3,2% í október.

Lesa meira

Hópuppsagnir í nóvember

Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í nóvember þar sem 79 starfsmönnum var sagt upp störfum í Framleiðslu á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum. Hópuppsagnirnar koma flestar til framkvæmda í febrúar 2024.

Lesa meira

Desemberuppbót til atvinnuleitenda verður greidd út föstudaginn 8. desember

Vinnumálastofnun greiðir desemberuppbót til atvinnuleitenda föstudaginn 8. desember. 
Óskert desemberuppbót er 99.389 krónur.  Rétt á fullri desemberuppbót eiga þau sem staðfesta atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2023 og hafa verið að fullu tryggð innan atvinnuleysistryggingakerfisins í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2023. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu 2023 og fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Uppbótin verður þó aldrei lægri en sem nemur 24.847 krónum.
Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára. Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum heldur nemur í öllum tilvikum sex prósentum af óskertri desemberuppbót eða 5.963 krónum með hverju barni.
Lesa meira

Opnað fyrir umsóknir vegna stuðning til greiðslu launa

Vinnumálastofnun hefur nú opnað umsókna- og greiðslukerfi fyrir umsækjendur um tímabundinn stuðning vegna launagreiðslna þeirra sem ekki hafa getað sinnt störfum sínum í Grindavík.

Starfsfólk og sjálfstætt starfandi einstaklingar sem ekki hafa getað sinnt störfum sínum í Grindavíkurbæ og atvinnurekendur sem greitt hafa slíku starfsfólki úr Grindavík laun geta átt  rétt á stuðningnum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Sjá nánar um málið
hér:

Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir starfsfólk sem ekki fær lengur laun frá atvinnurekanda og sjálfstætt starfandi einstaklinga. Ráðgert er að opna umsóknarferli fyrir atvinnurekendur föstudaginn 15. desember næstkomandi.

Lesa meira

Tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindarvíkurbæ

Alþingi samþykkti  þann 27. nóvember frumvarp félagsmálaráðherra um tímabundinn stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ. Vinnumálastofnun annast framkvæmd laganna. Markmið með lögunum er að vernda afkomu fólks sem ekki getur sinnt störfum sínum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ með því að tryggja launagreiðslur til viðkomandi upp að ákveðnu hámarki. Jafnframt er markmiðið að viðhalda ráðningarsambandi atvinnurekenda og starfsfólks.

Lesa meira

Stuðningur vegna launa fólks sem starfar í Grindavík

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum nú í morgun frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um tímabundinn stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavík. 

Lesa meira

Upplýsingar vegna stöðunnar í Grindavík

Í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er vegna aðstæðna í Grindavík vill Vinnumálastofnun koma eftirfarandi á framfæri:

Lesa meira

Information regarding the situation in Grindavík

An announcement from The Directorate of Labour in light of the current uncertainty due to the situation in Grindavík:

Lesa meira

Informacje dotyczące sytuacji w Grindavíku

Mając na uwadze stan niepewności, istniejący w związku z sytuacją w Grindavíku, Urząd Pracy (Vinnumálastofnun) chciałby przekazać, co następuje:

Lesa meira

Skráð atvinnuleysi í október var 3,2%

Skráð atvinnuleysi í október var 3,2% og hækkaði úr 3,0% í  september.

Lesa meira

Desemberuppbót til atvinnuleitenda

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda. Óskert desemberuppbót er 99.389 krónur. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára.

Lesa meira

Þú hefur skoðað 12 fréttir af 45

Sýna fleiri fréttir
Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni