Atvinnuleit í Evrópu með U2

Ef þú þiggur atvinnuleysisbætur getur þú farið í atvinnuleit til Evrópu og haldið dagpeningum þínum. Það er gert með því að sækja um U2 vottorð, það  veitir þér rétt til að fá greiddar atvinnuleysisbætur í allt að þrjá mánuði (en þó aldrei í lengri tíma en bótaréttur leyfir) meðan þú ert að leita þér að vinnu í EES ríki. Umsóknarferlið er rafrænt  á Mínum síðum.

Aðalskilyrði þess að fá útgefið U2 vottorð, eru að þú þarft að vera algjörlega atvinnulaus, hafa þegið bætur samfellt í fjórar vikur fyrir brottför og ekki hafa hafnað atvinnutilboði.

Sækja þarf um vottorðið  3 vikum fyrir brottför. Gildistími þess er allt að 3 mánuðir.

Halda skal áfram að staðfesta atvinnuleit með sama hætti og áður, milli 20. - 25. dags hvers mánaðar inn á „Mínum síðum“ á heimasíðu Vinnumálastofnunnar.

Hafir þú sótt um og hættir við að nota U2 vottorðið, skal strax hafa samband við Vinnumálastofnun og tilkynna að þú munir ekki að nota það með því að senda tölvupóst á netfangið: uvottord@vmst.is

Sótt er um U2 í gegnum Mínar síður

Smelltu hér til að fara á Mínar síður


HELSTU SKILYRÐI FYRIR ÚTGÁFU U2 VOTTORÐS ERU EFTIRFARANDI:

 HELSTU SKILYRÐI FYRIR ÚTGÁFU U2 VOTTORÐS ERU EFTIRFARANDI:

  • Ríkisborgararéttur í EES-ríki.
  • Réttur til atvinnuleysisbóta á Íslandi við brottför.
  • Umsækjandi hafi verið samfellt skráður, gefið kost á sér í vinnu og þegið atvinnuleysisbætur samfellt í a.m.k. fjórar vikur fyrir brottfarardag.
  • Umsækjandi sé algjörlega atvinnulaus.
  • Umsækjandi ætli í virka atvinnuleit erlendis.
  • Umsóknarfrestur er 3 vikur fyrir brottfarardag.
  • þú verður að vera staðsettur á Íslandi alveg fram að útgefnum brottfarardegi sem fram kom á u2 umsókninni.

SKRÁNING HJÁ VINNUMIÐLUN Í DVALARLANDINU.

Þegar þú kemur til þess lands þar sem þú hyggst leita að vinnu, verður þú eins fljótt og auðið er að fara á næstu vinnumiðlunarskrifstofu og skrá þig sem atvinnuleitanda. Til þess að geta þegið dagpeninga frá upphafi vottorðstímabilsins, verður þú að tilkynna þig innan 7 virkra daga frá gildistöku vottorðsins. Ef þú skráir þig eftir þann tíma þýðir það að þú getur í fyrsta lagi fengið dagpeninga frá skráningardegi. Ef þú getur ekki skráð þig í fyrsta skipti sem þú hefur samband við hina erlendu vinnumiðlun, er nauðsynlegt að fá staðfestingu frá erlendum yfirvöldum um að þú hafir leitað til vinnumiðlunar til þess að reyna að skrá þig.

Vinnumiðlunin í dvalarlandinu staðfestir hvaða dag þú skráðir þig í atvinnuleit erlendis og sendir upplýsingar um það til Greiðslustofu.

Með því að smella hér geturðu fengið yfirlit yfir öll lönd innan EES og upplýsingar um hvaða stofnun er VMST í hverju ríki fyrir sig. 

Vinnumálastofnun getur ekki tekið fyrir kvartanir vegna ákvarðana sem teknar eru í öðrum EES-ríkjum.

HVERS KONAR GREIÐSLU FÆRÐU?

Vinnumálastofnun heldur áfram að greiða atvinnuleysisbætur á vottorðatímabilinu meðan þú ert í atvinnuleit erlendis, að uppfylltum reglum  vinnumiðlunar þess lands sem atvinnuleitandi dvelst í. Erlendu vinnumálayfirvöldin meta einnig og senda tilkynningar til Vinnumálastofnunar, hvort viðkomandi atvinnuleitandi sé virkur í atvinnuleit á vinnumarkaðinum.

FÁIR ÞÚ EKKI ATVINNU Í ÖÐRU EES-RÍKI.

Tímabilið sem þú færð greiddar atvinnuleysisbætur í EES-ríkinu er ekki hægt að framlengja.

Þú verður að muna eftir því að afskrá þig hjá vinnumiðluninni í dvalarlandi áður en þú kemur aftur til Íslands. Þú getur ávallt hætt atvinnuleit erlendis og komið til baka til Íslands innan gildistíma vottorðsins.

Til þess að geta fengið aftur rétt til dagpeninga á Íslandi verður þú að koma aftur til Íslands áður en gildistími vottorðsins rennur út. Í tölulið 2.2.1 á vottorðinu sérð þú hvenær það rennur út. Ef þessi dagur er laugardagur, sunnudagur eða helgidagur, getur þú komið til landsins næsta virkan dag.

Þú hefur 7 virka daga eftir gildistíma vottorðsins eða komudegi hafir þú komið til landsins áður en tímabilinu lauk  til þess að skrá þig eftir komu til Íslands, eins og við brottför. Ef þú skráir þig ekki hjá vinnumiðlun á Íslandi, skv. ofangreindu missir þú rétt til dagpeninga, þegar þú kemur aftur til Íslands. Þá getur þú fyrst fengið dagpeninga þegar þú hefur unnið á Íslandi í minnst þrjá mánuði í a.m.k. 25% starfshlutfalli.

Vinnumálastofnun getur í sérstökum tilfellum framlengt frestinn fyrir komu aftur til Íslands. Vinnumálastofnun getur t.d. heimilað þér að skrá þig eftir að vottorðið rennur út, ef þú getur sannað að þú sért að fara í viðtal vegna atvinnuumsóknar í öðru ríki. Komu til Íslands getur einnig verið frestað getir þú sýnt fram á, að þú hafir verið forfallaður sökum veikinda, en þá þarf að framvísa staðfestingu þess efnis (læknisvottorð). Sækja verður um undanþágu áður en vottorð rennur út.

Frestur á komu aftur til Íslands, verður ekki framlengdur vegna áætlana að dveljast áfram í öðru EES-ríki (fram yfir gildistíma vottorðsins) í þeim tilgangi að bíða eftir dagpeningagreiðslu eða möguleikum á ferð aftur til Íslands.

Þú átt heldur ekki rétt á dagpeningum ef þú ferð í frí í öðru EES-ríki í framhaldi af vottorðatímabilinu.

Ætlir þú ekki að nýta þér áframhaldandi greiðslur úr atvinnuleysistryggingasjóði verður þú samt sem áður að tilkynna heimkomu til Vinnumálastofnunar innan 7 virkra daga. Að öðrum kosti þarf að ávinna sér rétt til atvinnuleysisbóta að nýju.

Til að staðfesta komu til baka til Íslands þarftu að mæta á þjónustuskrifstofu VMST með persónuskilríki og brottfararspjaldið.

ENDURNÝJUN Á TÍMABILI

Þú getur fengið U2 vottorð útgefið á ný ef að liðnir eru 6 mánuðir frá lokum fyrra tímabils og þú hefur starfað á þeim tíma á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli í 3 mánuði eða lengur. Athugaðu að starfið má ekki hafa verið hluti af vinnumarkaðsaðgerðum, svo sem ráðningarstyrk og uppfyllir að öðru leyti ákvæði laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

FÁIR ÞÚ ATVINNU Í ÖÐRU EES-RÍKI.

Ef þú færð vinnu í EES-ríki hættir þú að vera atvinnuleysistryggður á Íslandi en þá starfsreynslu sem þú vinnu þér inn í EES-ríkinu (ef þú varst atvinnuleysistryggður þar) getur þú flutt til Íslands ef erlend yfirvöld staðfesta tryggingar- og starfstímabilin með vottorði sem kallast U1. Þú sækir um það hjá okkur og við munum óska eftir  tilskildum vottorðum.

Ef þú færð hlutastarf á U2 vottorðstímabilinu, eiga viðkomandi atvinnuleysistryggingayfirvöld í EES-ríkinu að upplýsa Vinnumálastofnun um það og þú getur  fengið greiddar hlutabætur á vottorðstímabilinu samhliða hlutastarfi


Atvinnuleysisbætur frá öðru aðildarríki á meðan atvinnuleit stendur yfir á Íslandi - U2

Ef þú ert atvinnulaus og með rétt til atvinnuleysisbóta í landi innan EES getur þú tekið með þér U2 vottorð til Íslands sem veitir þér rétt til þess að halda atvinnuleysisbótum frá EES-ríkinu í allt að þrjá mánuði á meðan þú ert að leita þér að vinnu á Íslandi.
Ef þú ert námsmaður sem er að koma til Íslands eftir að hafa lokið námi erlendis, ert atvinnulaus og með rétt til atvinnuleysisbóta í landi innan EES, getur þú tekið með þér U2 vottorð sem veitir þér rétt til þess að halda atvinnuleysisbótum í allt að þrjá mánuði á meðan þú ert að leita þér að vinnu á Íslandi.
Sækja þarf um atvinnuleysisbætur í viðkomandi EES-ríki, fá útgefið U2 vottorð frá því og uppfylla önnur skilyrði sem það ríki hefur vegna atvinnuleysisbóta til þess að eiga rétt á greiðslum atvinnuleysisbótum samkvæmt U2 meðan atvinnuleit stendur yfir á Íslandi.

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni