Hópuppsagnir í mars 2019

Sex tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í mars þar sem 473 starfsmönnum var sagt upp störfum.

Tvær uppsagnir voru í starfsemi tengdri flutningum og geymslu, þar sem 328 manns var sagt upp störfum, þar af 315 hjá Airport Association, en stórum hluta þeirra sem sagt var upp þar hefur verið boðin endurráðning á öðrum kjörum. Því má gera ráð fyrir að uppsagnir verði í raun færri en fram kemur í tilkynningunni.

Hinar uppsagnirnar koma úr fjórum atvinnugreinum; 46 manns var sagt upp í ferðaþjónustu, 37 í framleiðslu, 32 í byggingastarfsemi og 30 í sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi. Flestar hópuppsagnir bárust frá fyrirtækjum á Suðurnesjum eða 347 og 126 á höfuðborgarsvæðinu. Hópuppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu maí til júlí 2019. Uppsagnir hjá Wow air og aðrar uppsagnir vegna gjaldþrota eru ekki Í þessum hópuppsögnum.

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2019 hefur 570 einstaklingum verið sagt upp störfum í hópuppsögnum.

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni