Desemberuppbót  til atvinnuleitenda

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda.

Óskert desemberuppbót er 92.229 krónur. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára.

Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem hafa verið að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2021 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2021. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Uppbótin verður þó aldrei lægri en sem nemur 23.057 krónum.

Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum, heldur nemur í öllum tilvikum sex prósentum af óskertri desemberuppbót eða 5.532 krónum með hverju barni.

Desemberuppbót atvinnuleitenda verður greidd út eigi síðar en 15. desember næstkomandi.

Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um desemberuppbót

 

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni