Atvinnuleysi mun aukast mikið í apríl og maí

Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi aukist í 10-11% nú í apríl og maí, bæði vegna fjölgunar almennra umsókna um atvinnuleysisbætur, en fyrst og fremst þó vegna fjölda þeirra sem eru að sækja um vegna minnkaðs starfshlutfalls.

Í meðfylgjandi samantekt er að sjá ítarlegri greiningu og forsendur fyrir spánni. Þar má sjá að gert er ráð fyrir að um 19.000 manns muni sækja um greiðslur vegna minnkaðs starfshlutfalls. Nú þegar eru komnar yfir 10 þúsund umsóknir um slíkar greiðslur og því líklegt að sú spá gangi eftir.

Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi lækki nokkuð skart aftur yfir sumarmánuðina og verði milli 6 og 7% í september. Því er spáð að meðalatvinnuleysi ársins 2020 verði um 7,4%, en óvissumörk á þeirri tölu eru eðlilega mikil.

Gangi þessar spár eftir verður atvinnuleysi í apríl og maí það mesta sem sést hefur í einstökum mánuðum frá því farið var að halda skipulega utan um atvinnuleysisskráningu um 1980. Hins vegar er gert ráð fyrir að þetta verði fremur tímabundið ástand og að atvinnuleysi muni lækka nokkuð hratt á komandi misserum.

Smelltu hér til að nálgast mat á þróun atvinnuleysis næstu mánuði. 

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni