Mikilvægt er að starfsmenn tilkynni vinnuveitendum eins fljótt og kostur er um sorgarleyfi og aðilar ákveði tilhögun þess enda er sorgarleyfi réttur til leyfis frá launuðum störfum.

 


Tilkynning og tilhögun sorgarleyfis

Starfsmaður sem nýtir sorgarleyfi skal tilkynna það vinnuveitanda eins fljótt og kostur er. Vilji foreldri breyta áður tilkynntri tilhögun sorgarleyfis skal foreldri tilkynna það vinnuveitanda a.m.k. einni viku fyrir upphafsdag nýrrar tilhögunar sorgarleyfis. Smellið hér til að nálgast tilkynningarformið*

Starfsmaður á rétt á að taka sorgarleyfi í einu lagi. Með samkomulagi við vinnuveitanda er þó heimilt að skipta því niður á fleiri tímabil og/eða taka það samhliða minnkuðu starfshlutfalli. Þó má aldrei nýta rétt til sorgarleyfis skemur en tvær vikur í senn.

Geti vinnuveitandi ekki fallist á óskir starfsmanns um tilhögun sorgarleyfis skal hann að höfðu samráði við starfsmann leggja til aðra tilhögun innan viku. Skal það gert skriflega og ástæður tilgreindar fyrir breyttri tilhögun. Náist ekki samkomulag milli aðila á starfsmaðurinn ávallt rétt á að nýta sorgarleyfi sitt í einu lagi frá þeim upphafsdegi sem hann ákveður.


Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni