Sumarlokanir
Vesturland: 15. júli - 2. ágúst
Vestfirðir: 22. júlí - 9. ágúst
Vegna kerfisbreytinga eru Mínar síður ekki aðgengilegar.
Opnað verður fyrir aðgang að Mínum síðum þriðjudaginn 17. maí kl. 09:00.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Hægt er að senda fyrispurnir á netfangið postur@vmst.is
Due to IT system changes, My pages are currently not accessible.
Access to My pages will be opened again on Tuesday the 17th of May at 09:00
We apologise for the inconvenience this may cause.
All inquiries can be sent via email to postur@vmst.is
Z powodu zmiany systemu operacyjnego, Moje Strony są aktualnie niedostępne.
Dostęp do Moich Stron zostanie umożliwiony ponownie we wtorek, 17.maja o godz. 09:00.
Przepraszamy za utrudnienia, które mogą w związku z tym powstać.
Wszelkie pytania mogą być kierowane mailowo na adres postur@vmst.is
Þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar á Ísafirði verður lokuð föstudaginn 21. júní.
Að jafnaði voru 6.767 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í maí og fækkaði um 36 frá apríl. Atvinnuleysi hefur ekki verið meira síðan í mars 2015 þegar það mældist sama og nú. Alls voru 2.677 fleiri á atvinnuleysisskrá í maí 2019 en í maí árið áður.
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í maí þar sem 53 starfsmönnum var sagt upp störfum.
Í sumar, frá og með 5. júní verður símatími atvinnuleyfa sem hér segir:
Mánudagar 10:00-11:00
Miðvikudagar 10:00-11:00
Bent er á að hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið atvinnuleyfi@vmst.is og workpermits@vmst.is
Vinnumálastofnun hefur samið við Advania um margvíslegt samstarf á sviði upplýsingatækni. Advania aðstoðar við að efla stafræna þjónustu Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofunar og Ægir Már Þórisson forstjóri Advania undirrituðu rammasamning um samstarfið í gær.
Í honum felst að Vinnumálastofnun heldur áfram nánu samstarfi við Advania meðal annars um hugbúnaðaþróun, vefsmíði, viðskiptagreind og hýsingu lausna. Fyrirtækið kemur að innri og ytri vefjum stofnunarinnar, hýsir og rekur upplýsingakerfi og ýmis sértæk kerfi svo sem fyrir Fæðingarorlofssjóð og Ábyrgðasjóð launa.
„Það er gaman að sjá gott samstarf leiða til hagræðingar og skilvirkni hjá Vinnumálastofnun. Þar hefur upplýsingatæknin leyst af hólmi handvirka og tímafreka ferla og stutt stofnunina í að veita betri þjónustu,“ segir Sigrún Ámundadóttir, framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna Advania.
„Vinnumálastofnun hefur lagt síaukna áherslu á stafræna þjónustu og er traust samstarf við upplýsingatæknifyrirtæki, grunnur að góðri afurð. Að gera ferlana stafræna styður við gildi Vinnumálastofnunar sem eru; fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki,“ segir Margrét Kr. Gunnarsdóttir sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun.
Advania hefur unnið með Vinnumálastofnun að stafrænni umbreytingu undanfarin ár. Í fyrra varð fyrirtækið hlutskarpast í útboði Ríkiskaupa um smíði á nýju grunnkerfi um stóran hluta þjónustu Vinnumálastofnunnar. Kerfið er hannað með það að leiðarljósi að spara atvinnulausum sporin, flýta afgreiðslu atvinnuleysisbóta og draga úr tímafrekri pappírsvinnu starfsfólks.