Vinnumálastofnun
Stjórn Vinnumálastofnunnar
Félagsmálaráðherra skipar stjórn Vinnumálastofnunar til fjögurra ára í senn skv. 5. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins tilnefna tvo aðalmenn og tvo til vara hvort, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Bandalag háskólamanna, fjármálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefna einn aðalmann og einn varamann hvert í stjórnina. Ráðherra skipar án tilnefningar tvo aðalmenn í stjórnina, formann og varaformann.
Í stjórninni eiga sæti:
| Runólfur Ágústsson, formaður | Skipaður af félagsmálaráðherra |
| Adolf H. Berndsen, varaformaður | Skipaður af félagsmálaráðherra |
| Halldór Þ. Grönvold | Tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands |
| Sigurður Bessason | Tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands |
| Stefán Aðalsteinsson | Tilnefndur af Bandalagi háskólamanna |
| Jón H. Magnússon | Tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins |
| Jón Rúnar Pálsson | Tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins |
| Arna Jakobína Björnsdóttir | Tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja |
| Ásta Lára Leósdóttir | Tilnefnd af fjármálaráðuneyti |
| Ellý Erlingsdóttir | Tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga |
Varamenn
|
Finnbjörn A. Hermannsson |
Tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands |
|
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir |
Tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands |
|
Halldóra Friðjónsdóttir |
Tilnefnd af Bandalagi háskólamanna |
|
Ragnar Árnason |
Tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins |
|
Hannes G. Sigurðsson |
Tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins |
|
Svala Norðdahl |
Tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja |
|
Guðmundur H. Guðmundsson |
Tilnefndur af fjármálaráðuneyti |
|
Sigrún Björk Jakobsdóttir |
Tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga |
Skipunartími er frá 1. júlí 2006 til 30. júní 2010.
Nánar um skipan og starfssvið stjórnar Vinnumálastofnunar
Samkvæmt 5. grein laga um vinnumarkaðsaðgerðir skipar félagsmálaráðherra stjórn Vinnumálastofnunar til fjögurra ára í senn. Tveir stjórnarmenn skulu tilnefndir af Alþýðusambandi Íslands, einn tilnefndur af Bandalagi háskólamanna, einn tilnefndur af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, einn tilnefndur af fjármálaráðuneyti, einn tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og tveir tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins. Tilnefna skal jafnmarga fulltrúa til vara. Ráðherra skipar tvo stjórnarmenn án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður stjórnar stofnunarinnar og hinn varaformaður.
Forstjóri Vinnumálastofnunar situr fundi stjórnarinnar með málfrelsi og tillögurétt.
Stjórn Vinnumálastofnunar skal hafa eftirlit með rekstri og starfsemi stofnunarinnar. Stjórninni er meðal annars ætlað að fjalla um og samþykkja starfs- og fjárhagsáætlun stofnunarinnar sem forstjóri leggur fyrir hana eigi síðar en í desember vegna komandi rekstrarárs. Enn fremur skal hún árlega leggja fram tillögur til stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs um fjármagn til greiðslu atvinnuleysisbóta og umsýslu Vinnumálastofnunar fyrir sjóðinn samkvæmt þjónustusamningi. Stjórn stofnunarinnar skal jafnframt annast faglega stefnumótun á sviði vinnumarkaðsaðgerða og gera félagsmálaráðherra grein fyrir atvinnuástandi og árangri vinnumarkaðsaðgerða í skýrslu í lok hvers árs. Skal stjórnin hafa reglulegt samráð við vinnumarkaðsráðin, sbr. 6. gr., við mat á atvinnuástandi á hverju svæði.
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd
















