Stjórn Vinnumálastofnunar

Félags- og vinnumarkasráðherra skipar stjórn Vinnumálastofnunar til fjögurra ára í senn skv. 5. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins tilnefna tvo aðalmenn og tvo til vara hvort, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Bandalag háskólamanna, fjármálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefna einn aðalmann og einn varamann hvert í stjórnina. Ráðherra skipar án tilnefningar tvo aðalmenn í stjórnina, formann og varaformann.  

Í stjórn Vinnumálastofnunar eiga sæti:

  • Huginn Freyr Þorsteinsson, án tilnefningar, formaður.
  • Lilja Birgisdóttir, án tilnefningar, varaformaður.
    Halldór Oddsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands.
  • Guðbjörg Kristmundsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands.
  • Andri Valur Ívarsson, tiln. af Bandalagi háskólamanna.
  • Hrannar Már Gunnarsson, tiln. af BSRB.
  • Guðný Einarsdóttir, tiln. af fjármála- og efnahagsráðuneyti.
  • Sólveig B. Gunnarsdóttir, tiln. af Samtökum atvinnulífsins.
  • Jón Rúnar Pálsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins.
  • Guðmundur Ari Sigurjónsson, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. 

Varafulltrúar

  • Sjöfn Ingólfsdóttir, án tilnefningar
  • Þórhallur Harðarson, án tilnefningar
  • Helga Ingólfsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands.
  • Finnbjörn A. Hermannsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands.
  • Kolbrún Halldórsdóttir, tiln. af Bandalagi háskólamanna.
  • Arna Jakobína Björnsdóttir, tiln. af BSRB.
  • Valgeir Þór Þorvaldsson, tiln. af fjármála- og efnahagsráðuneyti.
  • Maj-Britt Hjördís Briem, tiln. af Samtökum atvinnulífsins.
  • Guðmundur H. Guðmundsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins.
  • Kjartan Magnússon, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

    Skipunartími er frá 17. nóvember 2022 til 17. nóvember 2026.

Nánar um skipan og starfssvið stjórnar Vinnumálastofnunar

Samkvæmt 5. grein laga um vinnumarkaðsaðgerðir skipar félags- og tryggingamálaráðherra stjórn Vinnumálastofnunar til fjögurra ára í senn. Tveir stjórnarmenn skulu tilnefndir af Alþýðusambandi Íslands, einn tilnefndur af Bandalagi háskólamanna, einn tilnefndur af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, einn tilnefndur af fjármálaráðuneyti, einn tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og tveir tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins. Tilnefna skal jafnmarga fulltrúa til vara. Ráðherra skipar tvo stjórnarmenn án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður stjórnar stofnunarinnar og hinn varaformaður. 

Forstjóri Vinnumálastofnunar situr fundi stjórnarinnar með málfrelsi og tillögurétt.

Stjórn Vinnumálastofnunar skal hafa eftirlit með rekstri og starfsemi stofnunarinnar. Stjórninni er meðal annars ætlað að fjalla um og samþykkja starfs- og fjárhagsáætlun stofnunarinnar sem forstjóri leggur fyrir hana eigi síðar en í desember vegna komandi rekstrarárs. Enn fremur skal hún árlega leggja fram tillögur til stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs um fjármagn til greiðslu atvinnuleysisbóta og umsýslu Vinnumálastofnunar fyrir sjóðinn samkvæmt þjónustusamningi. Stjórn stofnunarinnar skal jafnframt annast faglega stefnumótun á sviði vinnumarkaðsaðgerða og gera félagsmálaráðherra grein fyrir atvinnuástandi og árangri vinnumarkaðsaðgerða í skýrslu í lok hvers árs. Skal stjórnin hafa reglulegt samráð við vinnumarkaðsráðin, sbr. 6. gr., við mat á atvinnuástandi á hverju svæði.

Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs:

 Ráðherra skipar níu manna stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs til fjögurra ára í senn skv. 6. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Aðalfulltrúar:

  • Bjarki Þór Grönfeldt, án tilnefningar, formaður
  • Helga Ingólfsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands
  • Hilmar Harðarsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands
  • Maríanna H. Helgadóttir, tiln. af Bandalagi háskólamanna
  • Berglind Margrét Njálsdóttir, tiln. af BSRB
  • Steinunn Sigvaldadóttir, tiln. af fjármála- og efnahagsráðuneytinu
  • Valgerður Rún Benediktsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Sólveig B. Gunnarsdóttir, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
  • Jón Rúnar Pálsson, tiln. af Samtökum atvinnulífins

Varafulltrúar:

  • Álfhildur Leifsdóttir, án tilnefningar, varaformaður
  • Halldóra Sveinsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands
  • Eiður Stefánsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands
  • Andri Valur Ívarsson, tiln. af Bandalagi háskólamanna
  • Þórarinn Eyjfjörð, tiln. af BSRB
  • Kristinn Hjörtur Jónasson, tiln. af  fjármála- og efnahagsráðuneytinu
  • Margrét Sigurðardóttir, tiln. af  Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Maj-Britt Hjördís Briem, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
  • Guðmundur H. Guðmundsson, tiln.af Samtökum atvinnulífsins

Stjórnin var skipuð af félags- og vinnumarkaðsráðherra 14. júní 2023.

 

Stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga:

Félags- og húsnæðismálaráðherra skipar stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga til fjögurra ára í senn skv. 8. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Aðalmenn

  • Helgi Haukur Hauksson, skipaður af ráðherra án tilnefningar, formaður
  • Oddný Steina Valsdóttir, tiln. af Bændasamtökum Íslands
  • Örn Pálsson, tiln. af Landssambandi smábátaeigenda
  • Grétar H. Guðmundsson, tiln. af Landssambandi vörubifreiðaeigenda

Varamenn

  • Ingveldur Ása Konráðsdóttir, skipaður af ráðherra án tilnefningar, varaformaður
  • Guðbjörg Jónsdóttir, tiln. af Bændasamtökum Íslands
  • Oddbjörg Friðriksdóttir, tiln. af Landssambandi smábátaeigenda
  • Davíð Sveinsson, tiln. af Landssambandi vörubifreiðaeigenda
Stjórnin er skipuð frá 13. maí 2020 til 13. maí 2024.

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni