Umsókn um greiðslur

Foreldri skal sækja um greiðslur vegna sorgarstyrks til Vinnumálastofnunar.

Greiðslufjárhæðir

Fjárhæðir sorgarstyrks námsmanna og foreldra utan vinnumarkaðs miðast við á hvaða ári foreldri verður fyrir barnsmissi, andvanafæðingu eða fósturláti

Upplýsingar um fjárhæð sorgarstyrks má nálgast hér.

Hvenær er greitt

Greitt er eftir á fyrir undanfarandi mánuð.

Dæmi: Foreldri sem hefur þegið sorgarstyrk í janúar fær greitt síðasta virka dag þess mánaðar.

Eftirlit

Mánaðarlega er framkvæmt eftirlit sem felst í því að keyrðar eru saman upplýsingar um greiðslur frá Vinnumálastofnun við skrár skattyfirvalda.

Skerðing á greiðslum

Foreldri getur verið heimilt að fá þann tekjumissi bættan sem greiðsla sorgarstyrks bætir ekki og er þá miðað við að vinnuveitandi megi bæta mismun á greiðslu sorgarstyrks og meðaltals heildarlauna síðustu 2 mánuði fyrir barnsmissi, andvanafæðingu eða fósturlát.

Greiðslur frá vinnuveitanda sem eru ætlaðar fyrir annað tímabil en það sem foreldri fær greiddan sorgarstyrk koma ekki til frádráttar styrknum.

Leiðrétting á greiðslum

Hafi foreldri fengið of háar greiðslur

Hafi foreldri fengið hærri greiðslur frá Vinnumálastofnun en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum ber foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Fella skal niður álagið færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Mikilvægi þess að tilkynna um breytingar

Mikilvægt er að foreldri tilkynni Vinnumálastofnun um öll þau tilvik sem leitt geta til of hárra greiðslna frá stofnuninni, þ.m.t. ef breytingar verða á tímabili sorgarstyrks eða tekjum.

Endurúthlutun réttinda

Foreldri kann að eiga inni rétt til  sorgarstyrks í kjölfar endurgreiðslu ef önnur skilyrði til þess eru uppfyllt, s.s. að réttur til sorgarstyrks hafi ekki fallið niður vegna tímamarka.

 


Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni