Bótaréttur einstaklings sem er í 8 eininga háskólanámi (BA-ritgerð) án mætingarskyldu
Nr. 67 - 2004

Úrskurður

 

Þann 19. október 2004 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 67/2004.

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Málsatvik eru þau að út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið ákvað á fundi sínum þann 20. september 2004, að hafna umsókn X um atvinnuleysisbætur frá 12. maí 2004. Úthlutunarnefndin tók ákvörðun sína með vísan til 5. gr. reglugerðar um greiðslu atvinnuleysisbóta nr. 545/1997, sem kveður á um að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum samhliða námi sem stundað er á venjulegum dagvinnutíma nema annað leiði af samningi um starfsleitaráætlun, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir.

 

2.

X kærði framangreinda ákvörðun til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 30. september 2004.  Í bréfi sínu segist hún vera skráð í 8 eininga nám við Háskóla Íslands háskólaárið 2004-2005 eða fram í febrúar 2005.  Hún eigi einungis eftir BA-verkefni í sálfræði og fylgi því engin tímasókn.  Nýverið hafi reglum sem lúta að einingafjölda lokaverkefnis í sálfræðiskor verið breytt.  Áður hafi eingingafjöldinn verið 6 einingar, en nú sé búið að auka hann í 8 einingar, þó vinnan að baki einingafjöldanum sé nákvæmlega sú sama og áður.  Henni hafi verið leyft að ákveða hvað hún vildi að ritgerðin gilti margar einingar vegna þess að hún hafi einungis gilt 6 einingar þegar hún var fyrst skráð í BA-ritgerðina.  Hún hafi kosið að láta hana gilda 8 einingar til þess að auka möguleika sína á að ná fyrstu einkunn við útskrift.

 

3.

Samkvæmt vottorði frá Háskóla Íslands, dags. 15. september 2004 er X skráð í 8 eininga nám við Háskóla Íslands háskólaárið 2004-2005 og mun brautskrást í febrúar 2005.  Vottorð félagsvísindadeildar Háskóla Íslands dags. 7. október 2004 staðfestir að X hafi lokið öllum námskeiðum í sálfræði til BA-prófs og þar með allri tímasókn.  Hún eigi einungis eftir að skrifa BA-ritgerð og þurfi því ekki að sækja neina tíma. 

 

 

 

Niður­staða

 

1.

Í 5. gr. reglugerðar um greiðslu atvinnuleysisbóta nr. 545/1997 er kveðið á um að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum samhliða námi sem stundað er á venjulegum dagvinnutíma, nema annað leiði af samningi um starfsleitaráætlun, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir.

 

            Samkvæmt þeim upplýsingum sem fyrir liggja í máli þessu er kærandi að skrifa lokaritgerð í sálfræði við Háskóla íslands.  Hann hefur lokið öllum prófum og sækir enga tíma í skólanum samfara ritgerðarsmíðinni.  5. gr. reglugerðar 545/1997 hefur ávallt verið túlkuð svo að um tímasókn á venjulegum dagvinnutíma þurfi að vera að ræða svo greinin eigi við.  Þannig fellur nám sem stundað er í kvöldskóla og nám utan venjulegs dagvinnutíma utan greinarinnar.  Kærandi hefur lokið öllum fögum þar sem gert er ráð fyrir tímasókn.   Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta á nefnd grein ekki við um nám kæranda.  Er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um synjun á umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur því felld úr gildi.

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 20. september 2004 um synjun á umsókn X um atvinnuleysisbætur er felld úr gildi með vísan til 5. gr. rgl. 545/1997 um greiðslu atvinnuleysisbóta..

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                 Benedikt Davíðs­son

 

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni