Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi. Ágreiningur um starfshlutfall. Staðfest.
Nr. 91 - 2005

Úrskurður

 

Þann 23. desember 2005 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 91/2005.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Málsatvik eru þau að út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta fyrir Austurland ákvað á fundi sínum sem haldinn var þann 3. nóvember sl. að fella niður bótarétt X í 40 bótadaga með vísan til 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar.  Ákvörðun þessi var tekin með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði frá 17. október sl. um starfslok X hjá A.

 

2.

X kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi 4. nóvember 2005.   Í bréfinu kveðst hún telja að brotið hafi verið á sér er starfshlutfall hennar var fyrirvaralaust fært niður í 50% en starfshlutfall hennar hafði verið tæp 70% fyrstu níu mánuði ársins.  Hún hafi undirritað ráðningarsamning í lok apríl.  Í honum hafi komið fram að um væri að ræða 50% starfshlutfall.  X segir að sér hafi einfaldlega sést yfir þetta þar sem hún hafi verið í leit að meiri vinnu.  Í byrjun september hafi hún hins vegar einungis verið sett í 50% starfshlutfall samkvæmt vaktaskipulagi.  Þegar hún hafi spurst fyrir um ástæðuna hafi henni verið tjáð að hún hafi einungis verið ráðin í 50% starf.  Hún hafi verið ósátt við þetta og óskað eftir að fá a.m.k. 65% starf, en því hafi verið hafnað.  Hún hafi orðið miður sín við þetta og gengið út.  X telur sig hafa verið beitta miklum órétti og segist ekki hafa getað hugsað sér að fara aftur til starfa hjá A. X fer fram á að úrskurðarnefndin felli ákvörðun úthlutunarnefndarinnar úr gildi. 

            Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá A frá 18. október 2005.  Þar kemur fram að X hafi verið í 63,4 % starfshlutfalli frá 1. júní til 31. desember 2003, 68% starfshlutfalli allt árið 2004 og 69,4% starfshlutfalli frá 1. janúar til 30. september 2005. Ástæða starfsloka er sögð sú að hún hafi sjálf sagt upp störfum.

 

 


Niður­staða

 

1.

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um at­vinnu­leysis­tryggingar, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerðar nr. 545/1997, um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta, en þar segir eftirfarandi:

 

Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tl. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tl. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

 

2.

Kærandi kveðst hafa sagt upp starfi sínu þar sem starfhlutfall hennar hafi verið lækkað úr 69,4% í 50% og ósk hennar um hærra starfshlutfall hafi verið neitað. Samkvæmt ráðningarsamningi sem hún hafði undirritað var hún ráðin í 50% starfshlutfall. Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast þær ástæður sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.  Hefur ágreiningur milli starfsmanna og vinnuveitanda um launakjör, vinnutíma og/eða aðstæður á vinnustað ekki talist falla undir gildar ástæður samkvæmt framangreindum reglum.

 

Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta fyrir Austurland um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar, staðfest.

 

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

Staðfest er ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta fyrir Austurland frá 3. nóvember 2005 um að X skuli missa rétt til at­vinnu­leysis­bóta í 40 bótadaga.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni