Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi vegna búferlaflutninga. Fellt úr gildi.
Nr. 36 - 2004

 

Úrskurður

 

Hinn 26. maí 2004 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 36/2004.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Úthlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið samþykkti á fundi sínum þann 10. maí 2004 umsókn X um atvinnuleysisbætur.  Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði dags. 10. maí 2004 um starfslok hennar hjá Y var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna, skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga.   

 

2.

X kærði framangreinda ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 25. maí 2004.  Í bréfinu segist hún hafa búið í Reykjavík mest alla sína ævi.  Hún flutti til Reykjanesbæjar í apríl 2003 vegna persónulegra aðstæðna.  Hún fékk þar vinnu og íbúð til leigu í eitt ár og dóttir hennar fékk leikskólapláss. Hún fór með dóttur sína í greiningu hjá barnalækni og kom þar í ljós að hún er ofvirk.  Eftir að treglega hafi gengið að fá hjálp fyrir barnið í Reykjanesbæ hafi hún ákveðið að flytja aftur til Reykjavíkur, en þar eigi hún alla sína fjölskyldu og geti fengið meiri aðstoð.  Í Reykjanesbæ eigi hún engan að.  Hún er einstæð móður og er að auki komin þrjá mánuði á leið af öðru barni sínu.  Vegna flutningsins hafi hún þurft að segja upp starfi sínu í Reykjanesbæ.

 

 

3.

            Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð dags. 10. maí 2004 frá Y.  Í vottorðinu kemur fram að X var í 100% starfi hjá Y tímabilið 8. apríl 2003 til 30. apríl 2004.  Ástæða starfsloka er sögð flutningur.

 

 

Niður­staða

 

1.

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

 

 

 

2.

Atvik í einstökum málum geta verið með þeim hætti að launþega hafi verið rétt eftir atvikum að segja starfi sínu lausu án þess að það valdi missi bótaréttar skv. 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.  Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta fellur búferlaflutningur milli landshluta undir slík atvik.  Fram hefur komið að kærandi sagði starfi sínu lausu vegna þess að hún var að flytja búferlum frá Reykjanesbæ til Reykjavíkur.  Ástæða flutnings er annars vegar sú að barn hennar hafði greinst ofvirkt og betri aðstoð er að fá fyrir barnið í Reykjavík, og hins vegar sú að hún er einstæð móðir, öll hennar fjölskylda býr í Reykjavík, en í Reykjanesbæ hafði hún engan sem hún gat leitað til.  Hún hefur að auki búið mest alla ævi sína í Reykjavík.  Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 felld úr gildi.

 

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 10. maí 2004 um niðurfellingu bótaréttar X í 40 bótadaga skv. 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997 um atvinnuleysisbætur, er felld úr gildi.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                Benedikt Davíðs­son

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni