Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga vegna höfnunar atvinnutilboðs af heilsufarsástæðum staðfest.
Nr. 32 - 2006

Úrskurður

 

Hinn 4. maí 2006 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 32/2006.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta nr. 2 fyrir höfuðborgarsvæðið ákvað á fundi sínum sem haldinn var þann 20. mars 2006 að réttur X til atvinnuleysisbóta skyldi falla niður í 40 bótadaga á grundvelli 1. mgr. 13. gr., sbr. 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar.  Ákvörðun þessi var tekin með vísan til þess að X hafnaði atvinnutilboði frá G frá 20. febrúar 2006. 

 

2.

 

X kærði framangreinda ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 23. mars 2006.  Í bréfi sínu segist hún hafa fengið tilboð um starf við þrif á hótelherbergjum.  Hún hafi strax í upphafi sagt á vinnumiðlun að hún gæti ekki unnið slík störf, en hún myndi þiggja öll önnur störf.  Hún hafi áður verið í slíku starfi á H og það hafi verið mjög erfitt þar sem hún hafi þjáðst af verkjum í baki er hún var í þeirri vinnu.  Hún hafi ekki verið beðin um læknisvottorð vegna þessa fyrr en eftir að henni hafi verið boðin vinnan á G.

            Í gögnum málsins liggur fyrir atvinnutilboð dags. 20. febrúar 2006 frá G.  Um var að ræða starf þernu við þrif á herbergjum.  Í atvinnutilboðinu kemur fram að henni hafi ekki verið boðið starfið þar sem það væri of erfitt fyrir bak og er vísað í læknisvottorð sem X lagði fram.  Í læknisvottorði frá 11. febrúar 2006 segir að X hafi verið vangæf í baki og að henni sé ráðlagt að stunda ekki vinnu þar sem lyfta þurfi þungu.  Í læknisvottorði frá 27 mars 2006 segir að X sé óvinnufær og óvíst hvenær hún verði vinnufær á ný.  Sagt er að ástand hennar verði metið mánuði seinna.

            Samkvæmt umsókn X hjá svæðisvinnumiðlun sem dagsett er 27. september 2005 segir að hún sé almennt vinnufær og er skertri vinnufærni neitað.  Meðal starfa sem hún óskar eftir er starf þernu.  Samkvæmt vinnuveitandavottorði þann 26. september 2006 frá R hóteli starfaði X sem þerna á hótelinu tímabilið 11. júlí til 17. ágúst 2005.  Sagt er að um tímabundna ráðningu hafi verið að ræða og að ástæður starfsloka séu m.a. óstundvísi.

 

 

Niður­staða

 

1.

 

Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar, eiga launamenn og sjálfstætt starfandi einstaklingar sem verða atvinnulausir rétt á bótum úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt því sem fyrir er mælt í lögunum, enda séu þeir í atvinnuleit og fullfærir til vinnu.  Samkvæmt 6. tölul. 2. gr. laganna er skilyrði bótaréttar að vera reiðubúinn til að ráða sig til allra almennra starfa.

Þetta skilyrði er áréttað frekar í 1. gr. reglugerðar um greiðslu atvinnuleysisbóta nr. 545/1997 en þar segir eftirfarandi:

 

,,Til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum þarf umsækjandi í atvinnuleit samkvæmt 1. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

a.         Að vera reiðubúinn til að ráða sig til allra almennra starfa, enda sé vinnan heimil að lögum og laun fyrir hana og starfskjör í samræmi við 1. gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980.

b.         Að vera fullfær til vinnu.

c.         Að fylgja starfsleitaráætlun sem gerð hefur verið á vegum svæðisvinnumiðlunar, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, eða skrá sig vikulega hjá svæðisvinnumiðlun/skráningaraðila.

 

 

Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar veldur það missi bótaréttar að neita starfi sem býðst fyrir milligöngu svæðisvinnumiðlunar eða á annan sannanlegan hátt, enda sé vinnan heimil að lögum og laun fyrir hana og starfskjör öll í samræmi við 1. gr. laga  um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980.  Samkvæmt 5. mgr. 13. gr. gilda ákvæði 4. tölul. 5. gr. laganna um missi bótaréttar samkvæmt greininni.  Réttur til bóta samkvæmt þessum tölulið fellur niður í 40 bótadaga í fyrsta sinn og skerðist bótatímabil sem því nemur. Missi maður aftur rétt til bóta öðlast hann ekki bótarétt að nýju, nema hann sanni að hann hafi stundað vinnu í samfellt sex vikur eftir að hann missti bótaréttinn.

 

2.

 

Kærandi fékk tilboð um starf þernu við þrif á herbergjum frá G þann 20. febrúar 2006. Kærandi neitaði starfinu á þeim forsendum að það væri of erfitt fyrir sig vegna bakvandamála. Er kærandi kom inn á skrá hjá svæðisvinnumiðlun þann 27. september 2005 kvaðst hún vera fullfær til vinnu og neitaði skertri vinnufærni.  Í umsókninni óskaði hún m.a. eftir þernustarfi. Í fyrirliggjandi læknisvottorði kemur fram að kæranda sé ráðlagt að stunda ekki vinnu þar sem lyfta þurfi þungu.  Ekki kemur fram í atvinnutilboðinu að lyfta þurfi þungu. Kærandi er erlendur ríkisborgari en í umsókn hennar segir að hún tali sæmilega íslensku.  Samkvæmt vinnuveitandavottorði frá R starfaði kærandi þar sem þerna í einn mánuð sumarið 2005.  Í vottorðinu segir að meðal ástæðna starfsloka sé óstundvísi kæranda.  Samkvæmt starfsfólki svæðisvinnumiðlunar var ekkert skráð um bakvandamál kæranda fyrr en eftir að hún fékk starfstilboðið.

Í umsókn um atvinnuleysisbætur felst yfirlýsing um að umsækjandi óski eftir því að fá greiddar atvinnuleysisbætur meðan á atvinnuleit stendur.  Sú atvinnuleit má almennt ekki vera háð þeim fyrirvara að aðeins ákveðnar tegundir starfa eða ákveðinn vinnutími komi til greina þannig að önnur störf séu útilokuð, sbr. 6. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 12/1997 þar sem segir að þeir sem eiga rétt til bóta samkvæmt lögunum skuli vera reiðubúnir til að ráða sig til allra almennra starfa.  Að mati úrskurðarnefndar bar kæranda að þiggja framkomið atvinnutilboð.  

 

Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta að staðfesta beri ákvörðun úthlutunarnefndar nr. 1 um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 1. mgr. 13. gr., sbr. 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997. 

Úr­skurðar­orð

 

Staðfest er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta nr. 2 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 20. mars 2006 um að X skuli sæta niðurfellingu bótaréttar í 40 bótadaga.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Linda Bentsdóttir

for­maður

 

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni