Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi til að starfa erlendis við sjálfboðaliðastörf. Fellt úr gildi.
Nr. 19 - 2007

Úrskurður

 

Þann 21. júní 2007 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­trygginga og vinnumarkaðsaðgerða upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 19/2007.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Málsatvik eru þau að úthlutunarnefnd atvinnuleysistrygginga samþykkti þann 27. mars 2007 umsókn X um atvinnuleysisbætur, frá 19.  febrúar 2007.  Bótaréttur hennar var hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils. Ákvörðun þessi var tekin með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, á grundvelli þess að hún hefði sagt upp störfum án gildra ástæðna.  Úrskurðarnefndin tók málið fyrst fyrir á fundi sínum þann 18. maí sl. en ákvað að fresta málinu til næsta fundar til frekari gagnaöflunar.

 

2.

 

X kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga með bréfi þann 18. apríl 2007.   Í bréfi sínu segist hún hafa sagt upp starfi sínu til að fara utan í sjálfboðaliðastarf.  Hún hafi viljað prófa eitthvað nýtt og gera eitthvað fyrir mannkynið.   Hún hafi verið erlendis í hálft ár og strax farið að leita sér að vinnu er hún kom heim.  Eftir eins mánaðar leit hafi hún fundið vinnu.  Af þessum sökum biður X um endurskoðun á ákvörðun úthlutunarnefndar.

Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð dags. 6. mars 2007 frá  H.  Þar kemur fram að kærandi starfaði sem aðstoðarverslunarstjóri tímabilið 1. september 2004 til 31. júlí 2006.  Ástæða starfsloka er sögð sú að hún hafi sjálf sagt upp störfum.  Einnig liggur fyrir staðfesting á þátttöku X í sjálfboðaliðaverkefni á vegum A, dags. 4. júní 2007.  Þar kemur fram að X starfaði sem sjálfboðaliði í K í sex mánuði tímabilið ágúst 2006 til febrúar 2007 og að hún hafi unnið að samfélagslegum málefnum. 

 

 


Niður­staða

 

1.

 

Ákvæði 54. gr.  laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar,  fjallar um þau atvik er starfi er sagt upp án gildra ástæðna.  Í 1. og 2. mgr. 54. gr. segir eftirfarandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur.  Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á biðtímanum skv. 1.mgr.

 

           

2.

 

Kærandi sagði upp starfi sínu til að starfa sem sjálfboðaliði í sex mánuði í K á vegum A.

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur.

 Kærandi fór utan á vegum A til þátttöku í sjálfboðaliðaverkefni. Eins og hér stendur á er það mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga að ástæður þær sem kærandi gefur upp fyrir uppsögn sinni séu gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysistrygginga um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga felld úr gildi með vísan til 1. mgr. sbr. og 3 mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

 

 

 

 

Úr­skurðar­orð

 

Felld er úr gildi er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysistrygging frá 21. mars 2007 um niðurfellingu bótaréttar X í 40 bótadaga.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni