Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga
Nr. 41 - 2003

 

Úrskurður

 

Hinn 19. maí  2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 41/2003.

 

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Úthlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið samþykkti á fundi sínum þann 24. febrúar 2003 umsókn B um atvinnuleysisbætur.  Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði dags. 17. janúar 2003 um starfslok hans hjá X hf. var réttur hans til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna, skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga.  Úthlutunarnefndin tók málið fyrir aftur á fundi sínum þann 10. mars 2003 og staðfesti fyrri ákvörðun sína.

 

2.

 

B kærði framangreinda ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 15. apríl 2003.  Í bréfinu segir hann að ástæðan fyrir því að hann hætti að mæta hafi verið sú að hann hafi lent í erfiðum skilnaði og að hann hafi orðið svo þunglyndur að hann hafi ekki farið út úr húsi í þrjá mánuði.  Hann sé nú að ná sér og sé að leita að vinnu á fullu. 

 

3.

 

            Samkvæmt vinnuveitandavottorði dags. 17. janúar 2003 frá X hf. starfaði B hjá fyrirtækinu í 100% starfshlutfalli tímabilin 1. janúar til 24. maí 2002 og 9. ágúst til 15. nóvember 2002 er hann hætti að mæta.  Einnig liggur fyrir í gögnum málsins læknisvottorð dags. 28. febrúar 2003 þar sem vottað er að B hafi um veturinn átt við heilsuvandamál að stríða sem vafalaust hafi átt þátt í því að hann missti vinnu sína í desember s.l.  Haft var samband við X h.f. og staðfesti yfirmaður fyrirtækisins að B hafi hætt að mæta eftir 15. nóvember s.l. án þess að gefa á því skýringar.

 

 

Niður­staða

 

1.

 

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

 

2.

 

Kærandi virðist hafa átt við heilsufarsvandamál að stríða sem ollu því að hann hætti að mæta til vinnu þann 15. nóvember 2002.  Kærandi sækir fyrst um atvinnuleysisbætur þann 16. janúar 2003 eða tveimur mánuðum eftir að hann hætti í vinnunni.  Það er mat úrskurðarnefndar aðvinnuleysisbóta að þar sem svo langur tími leið frá því hann hættir störfum þar til hann skráir sig atvinnulausan og sækir um vinnu þá megi beita undanþáguheimild 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997 um að beita ekki 40 daga niðurfellingu bótaréttar kæranda.    Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 felld úr gildi.

 

 

 

 

 

 

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

            Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr.1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 24. febrúar 2003 um að B skuli sæta missi bótaréttar í 40 bótadaga, er  felld úr gildi.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Frið­jón Guðröðarson

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                             Benedikt Davíðs­son

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni