Greiðslur atvinnuleysisbóta til námsmanns fyrst við annarlok.
Nr. 48 - 2003

 

Úrskurður

 

Hinn 19. maí 2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 48/2003.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

           

Málsatvik eru þau að úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta fyrir Norðurland eystra samþykkti á fundi sínum þann 15. apríl 2003 umsókn B um atvinnuleysisbætur frá 4. apríl 2003. Nefndin ákvað jafnframt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefjist ekki fyrr en framhaldsskólanum X þann 24. maí 2003. Ákvörðun þessi var tekin á grundvelli upplýsinga frá framhaldsskólanum X um að B hefði stundað þar nám á vorönn 2003.

 

2.

 

B kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 12. maí 2003.  Í bréfi sínu segist hann hafa verið í fullri vinnu fram að síðustu áramótum hjá N.  Þá hafi hann ákveðið að fara í framhaldsskólann X þar sem hann hafi mikinn áhuga á að mennta sig.  Í byrjun febrúar hafi hann séð fram á að hann hefði ekki fjárhagslegt bolmagn til að halda áfram námi og því hafi hann sagt sig úr skólanum.  Frá síðustu áramótum hafi hann unnið með skólanum í um 50% starfshlutfalli hjá H.  Eftir að hann hætti í skólanum í febrúar hélt hann áfram vinnu í H fram í lok mars s.l. er honum var sagt upp vegna samdráttar.  Þá sótti hann um atvinnuleysisbætur.  Hann hafi fengið bætur í fjóra daga fyrir mistök en síðan verið tjáð að þar sem hann hefði verið í skóla í janúar fengi hann ekki bætur fyrr en í vor þegar framhaldsskólanum X lyki.  Hann sé nú í vinnu en telur sig hafa haft rétt til atvinnuleysisbóta þar sem hann hafi hætt námi af fjárhagslegum ástæðum og tekur fram að foreldrar hans hafi ekki haft fjárhagslega getu til að hjálpa honum í náminu.

 

3.

           

Í gögnum málsins liggur fyrir vottorð frá framhaldsskólanum X dags. 7. apríl 2003 þar sem staðfest er að B hafi stundað nám við skólann á vorönn 2003 til 19. mars 2003.  Samkvæmt upplýsingum frá skólaritara lýkur vorönn við skólann þann 24. maí 2003. 

 

Niður­staða

 

1.

 

Sam­kvæmt 1. mgr. 1. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, eiga launa­menn og sjálf­s­tætt starf­andi einstaklingar, sem verða at­vinnu­lausir, rétt á bótum úr At­vinnu­leysis­trygginga­sjóði, enda séu þeir í at­vinnu­leit og full­færir til vinnu.  Í 2. gr. laganna eru sett fram þau lág­marks­skil­yrði sem um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur verður að upp­fylla til að eiga bóta­rétt sam­kvæmt lög­unum en þar segir orð­rétt:

Rétt til bóta sam­kvæmt lögum þessum hafa þeir sem full­nægja eftir­töldum skil­yrðum, sbr. þó 5. gr.:

1.                   Eru orðnir 16 ára að aldri en yngri en 70 ára.

2.                   Eru bú­settir hér á landi eða hafa fengið leyfi til at­vinnu­leitar í EES-landi.

3.                   Hafa óbundna heimild til þess að ráða sig til vinnu hér á landi.

4.                  Hafa á síðustu tólf mánuðum unnið sam­tals í a.m.k. 10 vikur miðað við fullt starf í trygginga­gjalds­skyldri vinnu en hlut­falls­lega lengri tíma ef um hluta­starf hefur verið að ræða, sbr. þó 17. gr. Norður­landa­samnings um al­manna­tryggingar, sbr. lög nr. 46/1993. Til að finna vinnu­fram­lag sjálf­s­tætt starf­andi skal miðað við skil á trygginga­gjaldi af reiknuðu endur­gjaldi síðustu tólf mánuði. Til að finna vinnu­fram­lag sjó­manna skal telja fjölda lög­skráningar­daga. Mánaðar­vinna sjó­manna telst 21,67 lög­skráningar­dagar.

5.                  Hafa í upp­hafi bóta­tíma­bils verið skráðir sem at­vinnu­lausir í þrjá daga sam­fellt. Ákvæði þetta gildir ekki um starfsfólk í fiskvinnslu sem ekki hefur rétt til að gera kauptryggingarsamning samkvæmt kjarasamningi VMSÍ og VSÍ/VMS.

6.                   Eru reiðubúnir að ráða sig til allra almennra starfa.

            Við ákvörðun bóta sam­kvæmt framan­greindu teljast ekki með þeir dagar er maður hefur verið í verk­falli eða verk­bann tekur til.

 

2.

 

Í 5. gr. reglu­gerðar um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta nr. 545/1997, er kveðið á um að náms­menn eigi ekki rétt á at­vinnu­leysis­bótum sam­hliða námi sem stundað er á venju­legum dag­vinnu­tíma, nema annað leiði af samningi um starfs­leita­r­á­ætlun, sbr. 15. gr. laga um vinnu­markaðs­að­gerðir.

Þá segir í 5. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, að þeir skuli ekki eiga rétt á at­vinnu­leysis­bótum sem hætta námi fyrir lok nám­s­annar. Í ákvæði þessu er kveðið á um að stjórn At­vinnu­leysis­trygginga­sjóðs sé heimilt að setja reglur um, að þeir sem hætta námi fyrir lok nám­s­annar skuli undir sér­stökum kring­um­stæðum eiga bóta­rétt. Kveðið er á um slíka undan­þágu í 6. gr. reglu­gerðar um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta nr. 545/1997, en þar segir orð­rétt:

Ef náms­maður sem hefur áunnið sér rétt til bóta hverfur frá námi á hann ekki rétt til bóta þann tíma sem eftir stendur af nám­s­önn.

Út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta er þó heimilt að veita undan­þágu frá þessu, ef veru­leg breyting hefur orðið á fjöl­skyldu­högum eða fjár­hags­stöðu sem valdið hafa því að hann hætti námi, sbr. 5. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar.

 

Að mati úr­skurð­ar­n­efndar at­vinnu­leysis­bóta ber að túlka framan­greint ákvæði sam­kvæmt orðanna hljóðan á þá vegu, að viður­lögum sam­kvæmt því verði beitt þegar um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hættir á miðri nám­s­önn. Hafi hann lokið nám­s­önn og sæki þá fyrst um at­vinnu­leysis­bætur á ákvæðið ekki við. Þá verður ákvæði 5. gr. áður­nefndrar reglu­gerðar um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta, ekki beitt um þá einstaklinga sem stunda nám utan venju­legs dag­vinnu­tíma.

 

3.

 

Það er niður­staða úr­skurð­ar­n­efndar at­vinnu­leysis­bóta að ákvæði 5. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar og 1. mgr. 6. gr. reglugerðar um greiðslu atvinnuleysisbóta eigi við í máli kæranda. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að undanþáguákvæði 2. gr. 6. gr. reglugerðarinnar eigi við um sig, þ.e. að verulegar breytingar hafi orðið á fjölskylduhögum eða fjárhagsstöðu hans, sem hafi valdið því að hann hafi orðið að hverfa frá námi.   Kærandi er 17 ára gamall piltur sem býr í foreldrahúsum.  Að eigin sögn stundaði hann námið aðeins í einn mánuð og var jafnfram í 50% starfi með náminu.  Með vísan til framan­ritaðs er það niðurstaða úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta að staðfesta beri ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta fyrir Norðurland eystra um að greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda hefjist fyrst við lok vorannar framhaldsskólans X eða 24. maí 2003, að uppfylltum öðrum skilyrðum laganna.

 

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

Úr­skurður út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta fyrir Norðurland eystra frá 15. apríl 2003 um að greiðslur atvinnuleysisbóta til B skuli fyrst hefjast við annarlok eða þann 24. maí 2003 er staðfestur.

 

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

 

Frið­jón Guðröðarson

for­maður

 

 

Árni Benedikts­son                                 Benedikt Davíðs­son

 

 

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni