Hópuppsagnir í apríl

Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í apríl þar sem 92 starfsmönnum var sagt upp störfum, 50 í sjávarútvegi þar sem gert er ráð fyrir endurráðningu í september og 42 í félagasamtökum. Uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu maí til ágúst 2022.

Lesa meira

Vegna úrskurða úrskurðanefndar velferðarmála er varða skerðingu á hlutabótum

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur í málum nr. 521, 530, 534 og 616/2021 komist að þeirri niðurstöðu að orlof og orlofsuppbót skuli ekki koma til skerðingar á hlutabótum í þeim mánuði sem greiðsla orlofs var innt af hendi. Niðurstaðan hefur m.a. áhrif á greiðslur til þeirra einstaklinga sem fengu greitt uppsafnað orlof, orlofsuppbót eða desemberuppbót á meðan þeir voru á hlutabótum árin 2020 og 2021. Unnt er að kynna sér úrskurði nefndarinnar á vef Stjórnarráðs Íslands https://www.stjornarradid.is/gogn/urskurdir-og-alit-/ 

Lesa meira


Hópuppsagnir í mars

Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í mars þar sem 34 starfsmönnum var sagt upp störfum í fræðslustarfsemi en þar er gert er ráð fyrir því að annar rekstraraðili taki við starfseminni og reksturinn muni því halda áfram með sama starfsmannafjölda.

Lesa meira

Lokað föstudaginn 18. mars vegna starfsdags

Vinnumálastofnun verður lokuð föstudaginn 18.mars vegna starfsdags. Opnum aftur mánudaginn 21. mars kl. 09:00

Lesa meira

Skráð atvinnuleysi var 5,2% í febrúar

Skráð atvinnuleysi var 5,2% í febrúar og var óbreytt frá janúar.  Að meðaltali fækkaði um 74 atvinnulausa frá janúarmánuði.

Lesa meira

Málþing: Brotthvarf úr skólum - birtingarmynd ójafnra tækifæra?

Velferðarvaktin stendur fyrir málþingi í samvinnu við félags- og vinnamarkaðsráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið á Grand Hótel 15. mars kl. 14-16 undir yfirskriftinni Brotthvarf úr skólum - birtingarmynd ójafnra tækifæra? Viðburðinum verður einnig streymt á tengli sem birtist á síðum ráðuneytanna skömmu fyrir upphaf málþings. Á málþinginu verður meðal annars kynnt ný skýrsla, Félagsleg og efnahagsleg staða og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum.

Lesa meira

Hópuppsagnir í febrúar

Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í febrúar.

Lesa meira

Vinnumálastofnun hlýtur styrk vegna tilraunaverkefnisins Vegvísir

Vegvisir

Lesa meira

Skráð atvinnuleysi í janúar var 5,2% og jókst úr 4,9% í desember

Skráð atvinnuleysi var 5,2% í janúar og fjölgaði atvinnulausum að meðaltali um 258  frá desembermánuði.

Lesa meira

Raskanir á þjónustu hjá Vinnumálastofnun vegna veðurs

Vegna óveðurs má gera ráð fyrir röskun á þjónustu hjá Vinnumálastofnun á morgun, mánudaginn 07. febrúar. Gera má ráð fyrir að þjónustuskrifstofur verði lokaðar fram eftir morgni og þá geta einnig verið raskanir á öðrum þjónustuleiðum eins og síma- og tölvusamskiptum.

Lesa meira

Þú hefur skoðað 36 fréttir af 39

Sýna fleiri fréttir
Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni