Nýsköpunarstyrkur hefur það að markmiði að auðvelda fyrirtækjum í nýsköpun og þróun að ráða fólk til starfa. Verkefnið er samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og háskóla-iðnaðar- og nýsköpunarráðuneitis.

Nýsköpunarstyrkur felur í sér þríhliða samning milli Vinnumálastofnunar, fyrirtækis og atvinnuleitanda um ráðningu í starf sem snýr að nýsköpun og þróun. Fyrirtæki skuldbindur sig til að ráða atvinnuleitanda sem sé í virkri atvinnuleit og á skrá hjá Vinnumálastofnun í allt að sex mánuði og greiðir laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Vinnumálastofnun greiðir styrk sem nemur upphæð grunnatvinnuleysisbóta í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi atvinnuleitenda auk 11,5% mótframlags í lífeyrissjóð.

Markmiðið með nýsköpunarstyrk er að:  

  • Að styðja við nýsköpun og þróun í fyrirtækjum.
  • Að koma á tengslum milli atvinnuleitenda og fyrirtækja. 
  • Að styðja við frumkvöðla með hugmyndir um nýsköpun. 
  • Að styðja við atvinnuleitendur og auðvelda þeim leit að störfum



Skilyrði fyrir nýsköpunarstyrk er að: 

  • Um starfandi fyrirtæki sé að ræða.
  • Eitt eða fleiri stöðugildi séu nú þegar í fyrirtækinu
  • Veruleg nýsköpun / þróun sé í því verkefni sem atvinnuleitandi er ráðinn til.
  • Atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit og á skrá hjá Vinnumálastofnun.
  • Ráðning atvinnuleitanda feli í sér fjölgun starfsmanna hjá fyrirtækinu.
  • Verkefni raski ekki samkeppni innanlands í viðkomandi starfsgrein. 
  • Atvinnurekandi sækir um nýsköpunarstyrk á vef Vinnumálastofnunar. Smelltu hér til að fara inn á síðuna.

  • Matshópur á vegum Vinnumálastofnunar og Atvinnuvega – og nýsköpunarráðuneytisins fer yfir umsóknir og metur hvort viðkomandi umsókn uppfylli þær kröfur sem gerðar eru.

  • Verkefnisstjóri Atvinnuvega – og nýsköpunarráðuneytisins sendir rafrænt svar til umsækjanda þar sem fram kemur hvort verkefnið geti haldið áfram í ferlinu. Vinnumálastofnun fær afrit af svarinu.

  • Ef svarið um þáttöku í nýsköpunarstyrk er jákvætt hefur atvinnurekandi samband við Vinnumálastofnun og skráir starfið sem samþykkt var rafrænt,.Smelltu hér til að nálgast leiðbeiningar.
  • Vinnumálastofnun aðstoðar við leit að starfsmanni sem hefur þá menntun, reynslu eða hæfni sem leitað er eftir. Hægt er að ráða með nýsköpunarstyrk hvern þann sem er í virkri atvinnuleit og á skrá hjá Vinnumálastofnun.

  • Atvinnuleitandi hefur ekki störf fyrr en búið er að ganga frá þríhliða samningi um nýsköpunarstyrk við atvinnuráðgjafa Vinnumálastofnunar.

  • Skila þarf inn afriti af undirrituðum ráðningarsamningi milli atvinnurekanda og starfsmanns sem uppfyllir ákvæði viðeigandi kjarasamninga. Hámarkslengd samnings er 6 mánuðir. Að 5 mánuðum liðnum getur fyrirtækið sótt um framlengingu til 6 mánaða í viðbót.

  • Samningur og greiðslur vegna hans falla úr gildi ef viðkomandi atvinnuleitandi hættir störfum hjá atvinnurekanda af einhverjum orsökum á gildistíma samningsins.

  • Tímabil ráðningar með styrk hjá atvinnuleitanda telst ekki til ávinnslutímabils.
     Atvinnuleitandi er afskráður af atvinnuleysisskrá á meðan á ráðningartímabili stendur.

  • Þegar verkefninu lýkur (eftir sex eða tólf mánuði) skilar atvinnurekandi lokaskýrslu um verkefnið, þar sem fram kemur hvort og þá hvernig markmið náðust og hvort viðkomandi starfsmaður hafi verið ráðinn ótímabundið. Smelltu hér til að nálgast eyðublað fyrir lokaskýrslu.

Vinnumálastofnun hefur tekið upp nýtt greiðslukerfi vegna ráðningarstyrkja. Allir reikningar vegna Nýsköpunarstyrks fara núna fram á Mínum síðum atvinnurekenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Nánari leiðbeiningar má finna hér: Uppgjörsleiðbeiningar v. Nýsköpunarstyrks

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni